Fréttir
Hera og Elín gefa til Haítí
Vinkonurnar Hera María og Elín Ylfa mættu galvaskar á skrifstofu SOS Barnaþorpanna sl. föstudag með 10.382 krónur sem þær höfðu safnað vegna hamfaranna á Haítí.
Stúlkurnar sem eru 10 ára voru greinilega með hugann hjá þeim börnum sem misstu foreldra sína í jarðskjálftanum. SOS Barnaþorpin á Haítí hafa þegar tekið við yfir 200 börnum og leita nú nákominna ættingja þeirra. Fleiri börn bætast við í hópinn á hverjum degi.
Þau börn sem ekki eiga nána ættingja á lífi býðst m.a. að búa með SOS-móður og öðrum börnum í SOS Barnaþorpi allt þar til þau verða fullorðin og fær um að standa á eigin fótum með góða menntun upp á vasann.
SOS Barnaþorpin þakka þeim stöllum Heru og Elínu fyrir velviljann og þeim öðrum sem aðstoðuðu þær við þetta góða framtak.

