Fréttir

Sjúkraskýli það sem dóminíski Rauði krossinn setti upp í samstarfi við SOS Barnaþorpin
Sjúkraskýli það sem dóminíski Rauði krossinn setti upp í samstarfi við SOS Barnaþorpin

Íslensk lyf til Haítí

4.2.2010

Actavis á Íslandi hefur afhent SOS Barnaþorpunum lyf til notkunar á hamfarasvæðinu á Haítí. Lyfin hafa þegar verið send á staðinn.

Um er að ræða 700 kíló af verkjalyfjum sem m.a. verður dreift frá um 40 starfsstöðvum SOS Barnaþorpanna á Haítí. Einnig er gert ráð fyrir að lyfin verði notuð í sjúkraskýli dóminíska Rauða krossins sem sett hefur verið upp í SOS Barnaþorpinu í Santo, í um 25 km fjarlægð frá upptökum skjálftans. Þar er tekið á móti sjúklingum og minni skurðaðgerðir framkvæmdar. Verkefnisstjórn SOS á Haítí hafði sérstaklega kallað eftir verkjalyfjum og því kom þessi gjöf sér mjög vel í því umfangsmikla hjálparstarfi sem nú er unnið og miðar að því að lina þjáningar Haítíbúa.

Söluverðmæti lyfjanna hér á Íslandi er rúmar tuttugu milljónir króna. Actavis gaf lyfin og Icelandair flutti þau endurgjaldslaust til Frankfurt. Þaðan sá flugfélagið Condor um að koma þeim til Santo Domingo í Dóminíska lýðveldinu en flugfélagið hefur annast flutning hjálpargagna fyrir SOS til landsins. Frá Santo Domingo verða lyfin svo flutt landleiðina til barnaþorpsins í Santo.

SOS Barnaþorpin þakka Actavis og Icelandair fyrir að bregðast svo skjótt og vel við neyðarkalli SOS Barnaþorpanna á Haítí.

Mæður með börn sín bíða eftir því að komast að hjá lækni Rauða krossins í sjúkraskýli á lóð SOS Barnaþorpsins í Santo

Mæður með börn sín bíða eftir því að komast að hjá lækni Rauða krossins í sjúkraskýli á lóð SOS Barnaþorpsins í Santo

Til baka, Senda grein, Prenta greinina