Fréttir

Rania spyr Abbas hvort hann haldi með Real Madrid eða Barcelona
Rania spyr Abbas hvort hann haldi með Real Madrid eða Barcelona

Forsetinn í heimsókn

3.2.2010

Þann 6. janúar* sl. heimsótti Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, SOS Barnaþorpið í Betlehem og gladdi börnin með nærveru sinni og gjöfum.

Spenningurinn hafði náð hámarki. Klukkan var alveg að verða tvö og lest gljáfægðra svartra glæsibifreiða með dökkar rúður ók inn um hlið barnaþorpsins. Síðustu þrjá dagana á undan hafði eftivæntingin smám saman farið vaxandi enda hafði forsetinn aldrei áður komið í heimsókn.

Börnin voru prúðbúin, fánar blöktu um allt þorpið og sérsveitarmenn lögreglunnar voru á hverju strái til að tryggja öryggi heiðursgestsins. Fyrrum SOS-börn (nú fullorðin) og SOS-mæður á eftirlaunum voru mætt til að upplifa þennan einstaka viðburð.

Abbas með börnunumHeimsókn Abbas, sem gjarnan er kallaður Abu Mazen, átti sér langan aðdraganda. Vorið 2008 hitti Abbas alþjóðaframkvæmdastjóra SOS Barnaþorpanna Helmut Kutin sem bauð honum að heimsækja barnaþorpið í Betlehem. Abbas tók boðinu vel og sagðist ætla að þiggja það við tækifæri. Einu og hálfu ári síðar boðaði hann svo komu sína í þorpið á sjálfan jóladaginn í fyrra. Og nú steig Abbas út úr forsetabílnum.

Abbas var boðið inn í eitt fjölskylduhúsið í barnaþorpinu þar sem SOS-móðirin Enshirah sýndi honum aðbúnað barnanna. Fimm ára gamall drengur, Hamoude, bauð meira að segja Abbas að gista í húsinu þeirra þá nótt.

Þessu næst horfði Abbas á stutt kynningarmyndband um daglegt líf í SOS Barnaþorpum um víða veröld og tók við gjöf frá börnunum í barnaþorpinu. Að loknum stuttum ræðuhöldum settist Abbas á tröppu í þorpinu og bauð börnunum að vera með sér á hópmynd. Áður en forsetinn yfirgaf svo barnaþorpið gaf hann barnaþorpinu bifreið, 30.000 dollara og jólagjöf handa hverju og einu barnanna.

Ung stúlka, Rania, vatt sér upp að Abbas og spurði hann hvort hann héldi með Real Madrid eða Barcelona en málið er eldfimt í barnaþorpinu sem og víðar og börnin ekki öll sammála um hvort liðið sé betra. Abbas spurði á móti „með hvoru liðinu heldur þú?“ og svaraði Rania „Barcelona“. „Þá held ég líka með Barcelona,“ svaraði Abbas að bragði og uppskar hlátur viðstaddra.

Þegar hér var komið sögu þurfti Abbas að yfirgefa barnaþorpið og gat því miður ekki þegið boð Hamoude um gistingu. Heimsóknin gladdi börnin mjög og fyrir utan glæsilegar gjafir skildi Abbas eftir góðar minningar í hugum allra viðstaddra.

Ógleymanleg stund fyrir börn og starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Betlehem

Ógleymanleg stund fyrir börn og starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Betlehem. Abbas er neðarlega fyrir miðri mynd. 

 

*Aðfangadagskvöld samkvæmt júlíanska tímatalinu



Til baka, Senda grein, Prenta greinina