Fréttir
Reynt að smygla börnum frá Haítí
Í gær óskuðu yfirvöld á Haítí eftir aðstoð SOS Barnaþorpanna við að tryggja öryggi 34 barna sem reynt hafði verið að smygla úr landi.
Nokkrir Bandaríkjamenn voru stöðvaðir með börnin þegar þeir reyndu að koma þeim yfir til Dóminíska Lýðveldisins án tilskilinna leyfa.
Börnin eru á aldrinum þriggja mánaða til tólf ára. Samtökin New Life – Children Refuge (www.newlifechildrensrefuge.org) standa að baki þessum flutningi á börnunum. Í skjölum frá New Life sem SOS Barnaþorpin hafa undir höndum segir að samtökin bjóði börnum frábæra aðstöðu í Dóminíska Lýðveldinu nálægt strönd með fótboltavelli og sundlaug. Þá hafi NL samtökin leyfi yfirvalda til að fara með munaðarlaus börn allt að tíu ára aldri yfir til Dóminíska Lýðveldisins og að aðstandendur barnanna geti heimsótt þau og fylgst með þeim í gegnum áðurnefnda heimasíðu.
Flest barnanna voru í tilfinningalegu uppnámi þegar komið var með þau í SOS Barnaþorpið í Santo í gær og læknir í þorpinu mat ástand einnar lítillar stúlku svo alvarlegt að hún var send á sjúkrahús til nánari skoðunar. Stúlkan er nú komin aftur í barnaþorpið og er að ná sér.
Sum barnanna nefndu að þau ættu foreldra á lífi og ein stúlkan (12 ára) tjáði starfsmönnum SOS að hún hefði ætlað á heimavistarskóla í Dóminíska Lýðveldinu.
Fljótlega eftir að yfirvöld komu með börnin í barnaþorpið komu þangað aðilar sem sögðust vera nánir ættingjar fimm barnanna. Þeir sögðu konu nokkra hafa farið með börnin og sagst ætla að bjóða þeim dvöl í sumarbúðum í Dóminíska Lýðveldinu.
Meira um hjálparstarf SOS á Haítí á Facebook síðu samtakanna.

