Fréttir
Haítí: SOS ungmenni lætur lífið
Í jarðskjálftanum 12. janúar sl. slösuðust tvö ungmenni á SOS ungmennaheimili á Haítí. Annað þeirra, 16 ára drengur, lést af völdum sára sinna sl. föstudag.
Í fyrstu var talið að drengurinn hefði ekki slasast alvarlega en þó var farið með hann til öryggis á sjúkrahús í Dóminíska Lýðveldinu til aðhlynningar þar sem hann svo lést.
Drengurinn bjó á SOS ungmennaheimili sem var í leiguhúsnæði í Santo, skammt frá Port-au-Prince.
Styrktarforeldrum drengsins hefur þegar verið tilkynnt um andlát hans en þeir voru ekki íslenskir.
Hægt er að leggja hjálparstarfi SOS Barnaþorpanna á Haítí lið með því að leggja inn á reikning: 0701–26–003116. Kennitala SOS er 500289-2529.

