Fréttir
SOS-móðir ásamt fjórum íbúum nýja barnaþorpsins
Nýtt barnaþorp í Gana
Nýverið var þriðja SOS Barnaþorpið í Gana opnað formlega í úthverfi Kumasi, næst stærstu borgar landsins. 120 umkomulaus börn fá þar heimili til frambúðar.
Í nýja barnaþorpinu eru 12 fjölskylduhús, dagheimili, leikskóli, grunnskóli og skrifstofa auk gestahúss og aðstöðu fyrir starfsfólk. Þá er samfélagsmiðstöð SOS staðsett í þorpinu en frá henni er Fjölskyldueflingu SOS stjórnað.
Börnunum til mikillar gleði er mikið og stórt leiksvæði í þorpinu.
Fjórða barnaþorpið í landinu er nú í byggingu í Tamale. Nánar um SOS Barnaþorpin í Gana hér (á ensku).


