Fréttir
Tíu tonn af hjálpargögnum
Í dag mun starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Santo í útjaðri Port-au-Prince fá tíu tonn af hjálpargögnum. Starfsmenn SOS í Dóminíska Lýðveldinu koma með gögnin í fylgd dóminískra hermanna.
Meðal hjálpargagna er: vatn (þó er enn nóg drykkjarvatn í barnaþorpinu og almenningur hefur notið góðs af því), dósamatur, mjólk, safi, pasta, lyf, tjöld, svefnpokar, lampar, stór plastborð, bensín, díselolía og verkfæri s.s. skóflur og hakar.
Fagaðilar lina þjáningar almennings
Í gær (sunnudag) kom fjórtán manna hópur starfsfólks SOS frá Kosta Ríka og Dóminíska Lýðveldinu til Santo. Hlutverk þeirra er að styðja starfsfólk SOS á Haítí, upplýsa það um að frekari hjálp sé á leiðinni og hefja undirbúning dreifingar á hjálpargögnum.
Með í för voru sálfræðingar, félagsfræðingar og hópur sjálfboðaliða sem ætlað er að lina líkamlegar sem og andlegar þjáningar almennings í nágrenni barnaþorpsins. Fimmtán sálfræðingar og félagsráðgjafar til viðbótar frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu eru nú á leið til Santo til að veita þar áfallahjálp.
Yfirvöld í Dóminíska Lýðveldinu munu setja upp og starfrækja neyðarskýli fyrir sjúkramóttöku á lóð barnaþorpsins í Santo.
Af okkar skjólstæðingum á Haítí er það að frétta að verið er að kanna aðstæður þeirra 2.600 einstaklinga sem eru í Fjölskyldueflingu SOS. Fregnir hafa borist um einhver dauðsföll í þeim hópi en við höfum ekki fengið neinar tölur. Börnin í barnaþorpunum í Cape Haitien og Santo eru örugg sem fyrr.
Mikil reynsla
Sá hópur sem nú stýrir aðgerðum SOS Barnaþorpanna á Haítí hefur mikla reynslu af neyðaraðstoð í kjölfar jarðskjálfta og fellibylja. Um er að ræða starfsfólk SOS frá Perú, Kosta Ríka og Dóminíska Lýðveldinu.
Samstarf við önnur barnahjálparsamtök
SOS hafa verið í sambandi við Unicef, World Vision, Plan International og önnur hjálparsamtök vegna hjálparstarfs á Haítí. Unnið er að því að samhæfa aðgerðir.

