Fréttir

SOS Grunnskólinn í Santo virðist nokkuð heill eftir hamfarirnar. Enn á þó eftir að meta hugsanlegar skemmdir. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

Myndir frá Haítí - eftir skjálftann

15.1.2010

Eins og komið hefur fram eru öll börnin okkar í barnaþorpunum tveimur á Haítí ómeidd eftir jarðskjálftann. Mikið mæðir þó á starfsfólki okkar við að sinna börnunum og hjálpa almenningi sem til okkar leitar.

Söfnunarreikningur SOS í MP banka: 0701–26–003116. Kennitala SOS er 500289-2529.

Næstu dagar, vikur og mánuðir verða erfiðir enda margir sem þurfa hjálp. Okkar fyrsta verk var að sjá til þess að börnin væru óhult og nú hefur starfsfólk okkar þegar hafið aðstoð við nágranna barnaþorpanna. Eftirfarandi aðstoð verður veitt fyrstu dagana:

  • Börnum sem misst hafa nánustu ættingja og húsnæðislausum mæðrum með börn verður boðin aðstaða í barnaþorpunum og þeim liðsinnt eftir okkar bestu getu.
  • Matvælum, drykkjarvatni, lyfjum, teppum o.fl. hjálpargögnum verður dreift í nágrenni starfsstöðva okkar á Haítí.
  • Áfallahjálp verður veitt enda þörf á slíku mjög brýn.
  • Við vinnum eftir áætlun um að sameina börn og foreldra sem orðið hafa viðskila.

Eftirfarandi myndir voru teknar í gær 14. janúar þegar starfsmanni SOS frá Dóminíska Lýðveldinu gafst kostur á að fljúga yfir barnaþorpið í Santo.

Hægt er að skoða þessar og fleiri myndir í betri upplausn á Facebook síðu SOS Barnaþorpanna.

Öll húsin í barnaþorpinu í Santo stóðu af sér jarðskjálftann. Enn á þó eftir að meta hugsanlegar skemmdir. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

Öll húsin í barnaþorpinu í Santo stóðu af sér jarðskjálftann. Enn á þó eftir að meta hugsanlegar skemmdir. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

SOS Grunnskólinn í Santo virðist nokkuð heill eftir hamfarirnar. Enn á þó eftir að meta hugsanlegar skemmdir. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

SOS Grunnskólinn í Santo virðist nokkuð heill eftir hamfarirnar. Enn á þó eftir að meta hugsanlegar skemmdir. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

Hús í næsta nágrenni SOS barnaþorpsins í Santo. Ljósmynd: Lucía Veloz frá SOS í Dóminíska Lýðveldinu.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina