Haítí: Börnin óhult
Við vorum að fá þær góðu fréttir frá Haítí að öll börnin okkar í barnaþorpunum eru óhult. Tvö ungmenni slösuðust lítillega í jarðskjálftanum en enginn lést. Allt starfsfólk SOS virðist einnig óhult.
Ungmennin tvö fengu meðhöndlun og munu ná sér að fullu. Þau bjuggu á ungmennaheimili SOS í leiguíbúð í Santo og virðist íbúð þeirra vera illa farin.
Einhverjar fleiri skemmdir hafa orðið á byggingum en samkvæmt fyrstu fréttum hafa engin mannvirki SOS hrunið.
Því miður höfum við ekki fengið fréttir af skjólstæðingum Fjölskyldueflingar SOS á Haítí en um er að ræða nokkur hundruð illa staddar barnafjölskyldur (2.600 manns). Búast má við fréttum af þeim á næstu dögum.
Framkvæmdastjóri SOS í Dóminíska Lýðveldinu er nú að skoða barnaþorpið í Santo og mun meta hvort barnaþorpið henti sem miðstöð neyðaraðstoðar SOS á Haítí. Staðsetning þorpsins er mjög hentug sökum nálægðar þess við upptök skjálftans, flugvöllinn og landamæri Dóminíska Lýðveldisins þaðan sem hjálpargögn SOS munu berast.
Sjá nánar hér um neyðaraðstoð SOS í kjölfar skjálftans á Haítí.
