Fréttir
SOS á Íslandi sendir fjármagn til Haítí
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa þegar sent tvær milljónir króna til hjálparstarfs á jarðskjálftasvæðinu. Þá hefur söfnunarreikningur verið opnaður í MP banka: 0701–26–003116. Kennitala SOS er 500289-2529.
Enn hefur ekki náðst samband við barnaþorpin okkar tvö á Haítí en 46 börn þar eiga íslenska styrktarforeldra.
Hvernig getur þú hjálpað? Sjá neðst.
SOS Barnaþorpin munu á næstu dögum og vikum sinna umfangsmiklu hjálparstarfi á Haítí og mun söfnunarfé nýtast við eftirfarandi aðgerðir:
Fyrsta stig aðgerða
- Við aðstoðum þá sem búa næst starfsstöðvum okkar í landinu.
- Við hjálpum barnafjölskyldum í nágrenni barnaþorpanna með öllu sem við eigum í þorpunum (vatn, föt, lyf, byggingarefni o.s.frv.).
- SOS Barnaþorpin í Dóminíska Lýðveldinu eru að útvega hjálpargögn til dreifingar á Haítí og reiknað er með að fyrstu bílar leggi af stað með gögn þaðan nk. laugardag.
- SOS mun starfa náið með öðrum hjálparsamtökum á svæðinu.
Annað stig aðgerða
- Við munum hjálpa verst stöddu barnafjölskyldunum og taka þær inn í sérstaka áætlun okkar sem kallast Fjölskylduefling og snýst um að gera fjölskyldum kleift að halda hópinn og hafa í sig og á.
- Við reisum bráðabirgðaskýli fyrir börn sem misst hafa sína nánustu. Þetta verður bæði gert við barnaþorpin og víðar.
- Við munum bjóða mæðrum með börn upp á örugg svæði þangað sem þær geta leitað og fengið hjálp.
- Við deilum út matvælum, lyfjum, fatnaði, teppi o.fl. nauðsynjum til almennings.
- Við bjóðum fólki í áfalli upp á sálfræðiaðstoð.
- Við hjálpum börnum sem orðið hafa viðskila við foreldra sína að finna sína nánustu.
Þriðja stig aðgerða
- Endurreisn bygginga sem teljast mikilvægar samfélaginu, s.s. skóla.
- Endurreisn okkar eigin bygginga sem orðið hafa fyrir skemmdum.
Þú getur hjálpað með því að:
- Gerast styrktarforeldri barns á Haítí
- Gerast barnaþorpsvinur og greiða mánaðarlega upphæð til uppbyggingar og reksturs barnaþorps á Haítí
- Leggja inn á neyðarreikning vegna Haítí: 0701 – 26 – 003116 - kt. 500289-2529
- Senda þessar upplýsingar áfram til þinna vina

