Fréttir

Upptök jarðskjálftans voru skammt frá SOS Barnaþorpinu í Santo
Upptök jarðskjálftans voru skammt frá SOS Barnaþorpinu í Santo

Haítí: starfsfólk á skrifstofu óhult - óvíst með börnin

13.1.2010

Nú hefur tekist að ná sambandi við framkvæmdastjóra SOS Barnaþorpanna á Haítí. Hann segir alla starfsmenn landsskrifstofunnar í Port-au-Prince vera heila á húfi.

Því miður hefur framkvæmdastjóranum ekki tekist að ná sambandi við SOS Barnaþorpin tvö þar sem sími virkar ekki og vegir eru lokaðir.

Landsskrifstofan í höfuðborginni skemmdist í skjálftanum og starfsfólkið hefur ekki komist heim til sín. Sumir starfsmannanna hafa frétt af skemmdum á eigin heimilum án þess þó að hafa náð sambandi við sína nánustu.

Upptök skjálftans voru aðeins 10 km frá Port-au-Prince þar sem landsskrifstofan er staðsett. Annað barnaþorpanna og samfélagsmiðstöð SOS eru 15 km fyrir utan borgina.

Sjá frétt hér frá því fyrr í dag.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina