Fréttir
Jarðskjálfti á Haítí
Eins og komið hefur fram í fréttum nú í morgun reið öflugur jarðskjálfti yfir Haítí í gær. Tala látinna hleypur á hundruðum, ef ekki þúsundum. Ekki hefur enn náðst samband við starfsfólk SOS í landinu.
Ítrekað hefur verið reynt að ná sambandi við starfsfólk SOS á Haítí en án árangurs. Gervihnattasímar virðast vera eina samskiptaleiðin sem stendur. Við munum birta upplýsingar hér á síðunni og á Facebook síðu SOS um leið og þær berast.
SOS Barnaþorpin hafa verið með öflugt barnahjálparstarf á Haítí undanfarin ár og munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða þá sem verst eru staddir eftir jarðskjálftann, með sérstaka áherslu á börn. Aðeins er rúmt ár síðan SOS Barnaþorpin sinntu neyðaraðstoð á Haítí í kjölfar fjögurra fellybylja á stuttum tíma.
SOS Barnaþorpin á Haítí voru stofnuð árið 1979. Fyrsta barnaþorpið er staðsett skammt frá höfuðborginni Port-au-Prince og opnaði árið 1982. Í dag reka SOS á Haítí tvö barnaþorp, tvö ungmennaheimili, tvo grunnskóla, einn verknámsskóla og fjórar samfélagsmiðstöðvar. Um 570 börn og ungmenni eru á framfæri SOS í landinu og um 2.600 manns njóta stuðnings Fjölskyldueflingar SOS.

