Fréttir

SOS heimili í Lockport í Illinois
SOS heimili í Lockport í Illinois

Angelina Jolie og Brad Pitt styrkja SOS

8.1.2010

Leikaraparið Angelina Jolie og Brad Pitt gáfu nýverið SOS Barnaþorpunum í Bandaríkjunum 100.000 dollara sem nota á til reksturs SOS heimila fyrir munaðarlaus börn þar í landi.

Rúm fimmtán ár eru síðan heimilin voru stofnuð í Flórída og Illinois sem ný úrræði fyrir umkomulaus börn í Bandaríkjunum. Þörfin var brýn enda er raunin í Bandaríkjunum, líkt og víðar í hinum Vestræna heimi, sú að mörg munaðarlaus börn flakka á milli fósturfjölskyldna, systkini eru aðskilin og þau verða fyrir ofbeldi á þeim heimilum sem þeim er komið fyrir á.

Við afhendingu styrksins sagði Angelina: „Við höfum fengið að sjá með eigin augum það undraverða starf sem SOS Barnaþorpin vinna meðal munaðarlausra og yfirgefinna barna. Og hjálpin heldur áfram þótt barnið eldist; starfsmenntun, framhaldsmenntun, aðstoð á fullorðinsárum og móralskur stuðningur. Þetta kallast varanleg hjálp.“

Og Brad bætti við: „Nú um jólin tökum við því sem sjálfsögðum hlut að vera með fjölskyldum okkar. Dæmin sýna að við höfum ekki hlúað nægilega vel að munaðarlausum og yfirgefnum börnum þessa heims.“

SOS Barnaþorpin í Bandaríkjunum reka heimili í Coconut Creek í Flórída þar sem 75 börn búa; í Lockport og Chicago í Illinois.

Angelina Jolie og Brad Pitt heimsóttu SOS Barnaþorpið í Amman í Jórdaníu fyrr í vetur

Angelina Jolie og Brad Pitt heimsóttu SOS Barnaþorpið í Amman í Jórdaníu fyrr í vetur. Sjá frétt um heimsóknina hér.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina