Fréttir

Nýja barnaþorpið í Dien Bien Phu er það þrettánda í Víetnam
Nýja barnaþorpið í Dien Bien Phu er það þrettánda í Víetnam

Nýtt SOS Barnaþorp opnað í Víetnam

4.1.2010

SOS Barnaþorpin í Víetnam eru nú orðin 13 talsins. Nokkrum dögum fyrir jól var nýtt þorp opnað formlega í Dien Bien Phu og hefur þessi vígvöllur stríðsins í Indókína nú loks fengið sitt eigið barnaþorp.

Það var mikið um dýrðir þegar formleg opnunarhátíð fór fram að viðstöddum börnunum, SOS-mæðrunum, styrktaraðilum, opinberum emættismönnum og fjölda annarra gesta.

Til að byrja með verður nýja barnaþorpið heimili 51 barns en þeim mun smám saman fjölga þar til þorpið verður orðið fullt, en það er hannað fyrir allt að 180 börn. Yngsta barnið sem þegar er flutt í barnaþorpið er aðeins tveggja ára og það elsta níu ára.

Síðar á þessu ári verður leikskóli tekinn í notkun í barnaþorpinu fyrir yngstu íbúa þorpsins og önnur börn í nágrenni þess.

Fyrsta SOS Barnaþorpið í Víetnam opnaði fyrir 22 árum síðan. 2.225 áður umkomulaus börn búa sem stendur í barnaþorpunum 13 sem eru staðsett vítt og breytt um landið. Fjórtánda barnaþorpið er þegar í bígerð og verður það í Quy Nhon.

Nýja þorpið er efst til vinstri á kortinu

map-vietnam-en-HR1



Til baka, Senda grein, Prenta greinina