Fréttir
Tilkynning til styrktaraðila vegna greiðslukorta
Komið hefur í ljós að mánaðarlegt framlag til SOS Barnaþorpanna er ekki að finna á kortayfirlitinu fyrir desember (til greiðslu í byrjun janúar) hjá hluta styrktaraðila.
Við þökkum athugulum styrktaraðilum sem bent hafa okkur á þessi, að því er virðist, mistök og biðjum alla hlutaðeigandi velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Framlagið sem nú vantar kemur á næsta kortareikning og verður það því tvöfalt hjá viðkomandi í byrjun febrúar.
Börnin og barnaþorpin munu ekki finna fyrir þessari töf á innheimtu framlaga.
SOS Barnaþorpin óska öllum styrktaraðilum sínum gleðilegs nýs árs og þakka stuðninginn við munaðarlaus og yfirgefin börn á árinu 2009.

