Fréttir
Peningagjafir til barnanna
Undanfarið hafa fjölmargir styrktarforeldrar haft samband við skrifstofu SOS Barnaþorpanna og spurt hvernig þeir geti sent börnunum peningagjafir.
Hvert barn er með persónulegan bankareikning í sínu heimalandi. Allir styrktarforeldrar hafa fengið senda heim sérstaka GJAFASEÐLA (sjá mynd). Þessa B gíróseðla má greiða í næsta bankaútibúi eða í heimabanka og fer upphæðin beint inn á reikning í nafni barnsins.
Einnig er hægt að millifæra gjöf til barnsins í heimabanka. Mikilvægt er að sá sem skráður er fyrir barninu greiði sjálfur úr sínum heimabanka svo kennitölurnar passi. Reikningsnúmerið er: 334-26-51092 og kennitala SOS: 5002892529.
Sé styrktarforeldri með fleiri en eitt barn deilist upphæðin jafnt á börnin. Hægt er að hafa samband við skrifstofu SOS Barnaþorpanna til að breyta því.
Styrktarforeldrum berst svo þakkarbréf frá viðkomandi barnaþorpi innan nokkurra vikna (getur tekið allt að þremur mánuðum).
Athugið að barnið fær ekki peninginn greiddan út strax. Hann ávaxtast á bankareikningi þar til barnið er tilbúið að standa á eigin fótum og lifa sjálfstæðu lífi án hjálpar SOS. Sé um hærri upphæðir að ræða fær barnið ráðgjöf um hvernig best sé að ráðstafa fénu. Oft nýtist það vel upp í kaup á fyrstu íbúð, til frekara náms eða til að koma á fót eigin atvinnustarfsemi svo dæmi séu tekin.

