Fréttir

tpa_picture_20023
Börn í SOS leikskóla í Komari á Sri Lanka sem byggður var í kjölfar Tsunami

Fimm ár frá Tsunami - litið um öxl

23.12.2009

Á jóladag eru fimm ár liðin frá Tsunami. Því er við hæfi að líta um öxl og skoða þá hjálp sem SOS Barnaþorpin veittu.

Helmut Kutin alþjóðaforseti SOS hefur þetta um málið að segja: „Við höfum staðið við loforð okkar og hjálpað þeim sem illa urðu úti í þessum náttúruhamförum, sérstaklega börnunum.“

Þann 26. desember skullu stórar flóðbylgjur á strandlengjum við Indlandshaf. A.m.k. 220.000 manns létu lífið og gríðarlegar skemmdir urðu á eigum fólks. Milljónir manna urðu fyrir miklu áfalli og þurftu að takast á við áfallið við hörmulegar aðstæður.

tpa_picture_33021

Helmut Kutin í Akkamepettai á Indlandi þar sem SOS byggðu fjölmörg hús fyrir þá sem misstu heimili sín í Tsunami

Nú, fimm árum síðar er erfitt að sjá áhrif hamfaranna þegar maður heimsækir helstu staði á Tælandi sem urðu illa úti. Aðra sögu er að segja um Sri Lanka og Indónesíu þar sem enn er verk óunnið.

Rausnarleg framlög fólks um allan heim gerðu það að verkum að SOS Barnaþorpin réðust í umfangsmestu neyðaraðstoð í sögu samtakanna strax fyrstu dagana eftir hamfarirnar. SOS veittu um 20.000 manns nauðsynlegustu aðstoð síðustu daga ársins 2004 og í upphafi 2005. Samtökin byggðu 2.230 lítil íbúðarhús fyrir fjölskyldur sem misst höfðu heimili sín. Um 11.000 manns búa í þessum húsum í dag. Þá gáfu SOS sjómönnum sem misst höfðu báta sína alls 343 nýja fiskibáta.

 

tpa_picture_18313

Margir misstu fiskibáta sína í náttúruhamförunum þann 26. desember 2004 en SOS gáfu 343 nýja báta svo samfélögin gætu áfram veitt í soðið

 

Í upphafi árs 2008 var nærri öllum byggingaverkefnum í Indónesíu, Srí Lanka og Tælandi lokið, þ.á.m. 18 fjölnota samfélagsmiðstöðvum og tveimur skólum. Öllum þessum mannvirkjum hefur verið komið í hendur yfirvalda.

Sex ný SOS Barnaþorp (tvö á Indlandi, eitt í Tælandi og þrjú á Indónesíu) voru byggð til að taka við börnum sem annað hvort misstu foreldra sína í flóðbylgjunum eða geta ekki búið með sínum nánustu vegna afleiðinga náttúruhamfaranna. Um 700 börn hafa fengið SOS móður og heimili í þessum nýju barnaþorpum.

Auk þess að búa um 700 börnum heimili hafa SOS Barnþorpin á svæðinu einnig sett á fót Fjölskyldueflingu til hjálpar verst stöddu barnafjölskyldunum. Yfir 3.600 börn og fullorðnir þiggja nú ýmis konar aðstoð Fjölskyldueflingarinnar.

 

tpa-picture-39312

Putri litla í fangi móður sinnar

 

Allt frá 26. desember 2004 höfum við fylgst með lífi Putri litlu sem fæddist sama dag og flóðbylgjan reið yfir. Fæðingarstaður hennar var þak á mosku í Meulaboh á Indónesíu. Mæðgurnar hafa notið stuðnings SOS allt frá þessum örlagaríka degi. Hér má lesa sögu Putri litlu sem verður fimm ára á öðrum degi jóla.

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina