Fréttir

Aðstæður í flóttamannabúðunum eru mjög erfiðar
Aðstæður í flóttamannabúðunum eru mjög erfiðar

Íslendingar hjálpa flóttabörnum á Sri Lanka

10.12.2009

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að styrkja neyðarverkefni á Sri Lanka þar sem umkomulausum flóttabörnum er hjálpað að hafa uppi á ættingjum sínum.

Framlag SOS á Íslandi er um þrjár milljónir króna og er um að ræða frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja.

185 börn eru nú undir verndarvæng SOS í flóttamannabúðunum í Chettikulam í norðurhluta landsins en börnin búa í bráðabirgðahúsnæði sem samtökin reistu á svæðinu. Á meðan verið er að leita að ættingjum þeirra njóta þau menntunar og góðrar umönnunar.

Þegar hefur tekist að finna nákomna ættingja 45 annarra barna.

Reynist foreldrar einhverra barnanna látnir eða takist ekki að finna ættingja þeirra munu þau fá móður og heimili í SOS-barnaþorpum þar til þau verða fær um að sjá um sig sjálf (líklega um tvítugsaldurinn).

Sjá frétt hér frá því í ágúst.

Hér er svo frásögn stúlku sem kom til SOS í flóttamannabúðunum.

tpa-picture-40297

Frjáls leikur getur hjálpað börnunum að gleyma um stund þeirri staðreynd að þau urðu viðskila við foreldra sína og vita jafnvel ekki hvort þeir eru á lífi.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina