Fréttir

Abdullahi að störfum í heilsugæslunni í Afgoye
Abdullahi að störfum í heilsugæslunni í Afgoye

Læknar SOS slasast í sprengjuárás í Mogadishu

3.12.2009

Tveir læknar við sjúkrahús SOS Barnaþorpanna í Mogadishu höfuðborg Sómalíu slösuðust í sprengjuárás á hóteli í borginni í morgun.

Nokkrir létu lífið í árásinni (þ.a. þrír ráðherrar skv. mbl.is) og margir slösuðust. Verið var að útskrifa nýja lækna frá Banadir háskólanum en læknanemum við skólann gefst kostur á að starfa á SOS sjúkrahúsinu samhliða námi. Af þeim sökum voru tveir læknar SOS sjúkrahússins viðstaddir útskriftina, þeir Abdullahi Hussein og Tahlil Abdi.

Abdullahi stundaði læknanám í Mogadishu og hóf síðan störf á SOS sjúkrahúsinu árið 1991. Árið 1995 flutti hann til Ítalíu til framhaldsnáms í barnalækningum og þaðan til starfa í Bretlandi. Hann snéri svo aftur til Mogadishu árið 2005 og hefur starfað við SOS sjúkrahúsið í borginni síðan við mjög erfiðar aðstæður.

Báðir læknarnir eru nú til meðhöndlunar á sjúkrahúsi í Mogadishu. Þá er annars læknis saknað eftir sprenginguna, en sá hefur verið í starfsþjálfun undanfarið á SOS sjúkrahúsinu.

4.desember / Viðbót við frétt:

Læknarnir tveir hafa nú verið fluttir á sjúkrahús í Nairobi í Keníu þar sem gert er að sárum þeirra. Læknirinn sem saknað var er heill á húfi.

Frá barnadeild SOS sjúkrahússins í Mogadishu

Frá barnadeild SOS sjúkrahússins í Mogadishu



Til baka, Senda grein, Prenta greinina