Fréttir
Telma og Helga
Tombóla
Vinkonurnar Telma og Helga færðu SOS-barnaþorpunum nýverið rúmar tíu þúsund krónur en peningurinn var afrakstur tombólu sem þær héldu.
Þær Telma og Helga, sem báðar eru tíu ára, gengu í hús í Kópavogi og söfnuðu „dóti“ sem þær svo seldu fyrir utan verslunina Strax við Hófgerði. Ágóðinn kr. 10.080 vildu þær að rynni til munaðarlausra og yfirgefinna barna í SOS-barnaþorpum.
Færum við þeim stöllum hér með okkar bestu þakkir fyrir frábært framtak og góðan stuðning.

