Fréttir

Frá nýja barnaþorpinu í Cali
Frá nýja barnaþorpinu í Cali

SOS-barnaþorpin orðin 500

14.11.2009

Nýverið átti sá merki atburður sér stað að 500. SOS-barnaþorpið var tekið í notkun. Þorpið er í borginni Cali í Kólumbíu.

Um 50 börn hafa þegar fengið heimili, móður og systkini í 14 húsum í nýja þorpinu en það getur tekið við allt að 120 munaðarlausum og yfirgefnum börnum. ÞorStúlka í SOS-barnaþorpinu í Calipið er í raun röð húsa í götu einni í borginni Cali, þriðju stærstu borg Kólumbíu.

Börnin sem fengið hafa skjól í nýja barnaþorpinu hafa mátt þola mikla erfiðleika á fyrri heimilum þrátt fyrir ungan aldur. Auk þeirra sem eru munaðarlaus eru þar börn sem misnotuð hafa verið kynferðislega, beitt öðru líkamlegu ofbeldi eða verið yfirgefin.

Nýja barnaþorpið er það sjötta í landinu og verið er að reisa það sjöunda. Um 800 áður umkomulaus börn búa í barnaþorpum í Kólumbíu og um 2.600 fyrrum SOS-börn eru orðin fullorðin og sjá um sig sjálf.

map-colombia-en-HR1

Til baka, Senda grein, Prenta greinina