Fréttir
SOS! ÆSKA
SOS Barnaþorpin í fjölmörgum löndum vekja um þessar mundir athygli á mikilvægi góðrar æsku. Við bjóðum þér að skrá þig sem SOS Æskuvin og sýna þannig málefninu móralskan stuðning þér að kostnaðarlausu.
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sett á fót sérstaka vefsíðu þar sem þú getur skráð þig sem SOS Æskuvin, lesið góðar æskuminningar annarra, skrifað eigin minningu og sent þeim sem þér þykir vænt um rafrænt knús. Allt til að benda á mikilvægi góðrar æsku.
Hér finnur þú SOS! ÆSKU: www.soschildhood.org/is
(Sérstaka GSM útgáfu SOS! ÆSKU finnur þú hér: http://m.soschildhood.org/is)
Þú getur einnig gerst SOS Æskuvinur með því að senda okkur nafn þitt með sms í 1910.
Þá getur þú sótt þér Facebook viðbót átaksins og boðið vinum þínum að gerast SOS! Æskuvinir.
Átakið er í tilefni þess að SOS Barnaþorpin eru 60 ára í ár og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna 20 ára. Í tilefni átaksins ætlar Bylgjan að fjalla um mikilvægi góðrar æsku á næstu dögum.
SOS Barnaþorpin hvetja þig til að gerast SOS! Æskuvinur og hlúa að æsku þessa heims.

