Fréttir

Ekki er lengur hægt að nota þessar útidyr í barnaþorpinu í San Vicente þar sem flóðið hefur skolað jarðveginum burt.
Ekki er lengur hægt að nota þessar útidyr í barnaþorpinu í San Vicente þar sem flóðið hefur skolað jarðveginum burt.

Barn lætur lífið í fellibyl

11.11.2009

Fellibylurinn Ída tók líf fjögurra ára drengs og eyðilagði heimili og uppskeru nokkurra fjölskyldna sem eru skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS í El Salvador.

Miklar skemmdir urðu einnig á byggingum í SOS-barnaþorpunum í San Vicente og Santa Ana en engan sakaði í barnaþorpunum.

Hinn fjögurra ára gamli Alexis átti enga möguleika þegar gríðarlegt flóð tætti heimili hans á meðan fjölskyldan var heima sl. sunnudag. Móðir hans og eins árs gömul systir björguðust. Lík Alexis hefur enn ekki fundist. Fjölskyldan sem notið hefur hjálpar Fjölskyldueflingar SOS í þrjú ár þarf nú á meiri hjálp að halda en nokkru sinni.

Börn í SOS-barnaþorpinu í San VicenteNokkrar aðrar fjölskyldur í Fjölskyldueflingu SOS misstu heimili sín, sumar hafa séð á eftir uppskeru sem þær byggðu lífsafkomu sína á. 45 fjölskyldur (þar af 68 börn) eru skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS í San Vicente og eru tveggja fjölskyldna saknað.

Einnig urðu skemmdir á byggingum í tveimur barnaþorpum. Verið er að meta skemmdir og verður gengið í lagfæringar við fyrsta tækifæri.

130 manns létu lífið þegar Ída gekk yfir El Salvador og yfir 250 heimili eyðilögðust. Þá skemmdust um 1.800 byggingar og 70 manns er saknað í landinu. Þar er nú mikil þörf fyrir drykkjarvatn, mat og teppi.

map_el_salvador_en_HR1



Til baka, Senda grein, Prenta greinina