Fréttir
Móey María, Baldvin Egill, Laufey Lind og Gerður Sædal.
Tombóla fyrir SOS
Nýverið komu fjórir krakkar við á skrifstofu SOS-barnaþorpanna með afrakstur tombólu sem þeir héldu fyrir barnaþorpin.
Tombólan var haldin fyrir utan Nettó við Salaveg og voru til sölu hlutir sem krakkarnir höfðu safnað hér og þar. Alls fengu krakkarnir 5.500 krónur sem koma sér vel enda gerir margt smátt eitt stórt.
Krakkarnir heita Móey María, Baldvin Egill, Laufey Lind og Gerður Sædal. SOS-barnaþorpin þakka þeim fyrir gott framtak í þágu þeirra barna sem minnst mega sín.

