Fréttir

Barn í SOS-barnaþorpi í Víetnam
Barn í SOS-barnaþorpi í Víetnam

Flóð í barnaþorpi í Víetnam

5.11.2009

Í kjölfar fellibyljarins Mirinae er nú 1-2 metra djúpt vatn í SOS-barnaþorpinu í Nha Trang í Víetnam. Sömu sögu er að segja af Quy Nhon þar sem fyrsta skóflustungan að nýju barnaþorpi verður tekin síðar í mánuðinum.

Til allrar hamingju amar ekkert að börnunum okkar en verið er að meta skemmdir á byggingum og innanstokksmunum.

SOS-barnaþorpið í Nha TrangFellibylurinn gekk yfir Víetnam þann 3. nóvember og vitað er um 31 látinn og 45 slasaða í landinu. Þá er 21 saknað.

13 SOS-barnaþorp eru í Víetnam og það fjórtánda í bígerð eins og áður segir. 65 börn í þessum þorpum eiga íslenska styrktarforeldra.

Því miður hafa okkur ekki enn borist myndir af þorpinu eftir að fellibylurinn gekk yfir.

Nha Trang má sjá á kortinu hér að neðan. Þorpið er það austasta í landinu.

map-vietnam-en-HR1



Til baka, Senda grein, Prenta greinina