Fréttir
Jólakortagerð í Malaví
Börnin okkar í barnaþorpum um allan heim eru um þessar mundir önnum kafin við að útbúa jólakort fyrir styrktarforeldra sína. Börnin í Blantyre í Malaví eru þar engin undantekning.
SOS-barnaþorpið í Blantyre er það yngsta í Malaví, en aðeins eru tvö ár síðan þorpið opnaði. Börnin eru sér hins vegar mjög meðvituð um mikilvægi styrktarforeldra sinna og vilja gleðja þá með jólakortum.
Rhoderick Khuleya er starfsmaður barnaþorpsins og hefur verið að hjálpa börnunum við kortagerðina. Hann segir börnin njóta þess að útbúa jólakortin og undir það tekur einn lítill drengur í þorpinu: „Ég er viss um að styrktarforeldrar mínir sjái hve mikils ég met stuðning þeirra þegar þeir fá þetta kort.“
Þeim styrktarforeldrum sem farnir eru að huga að sendingu til SOS-barna sinna bendum við á þessar upplýsingar.

Einn stoltur!

Nokkur sýnishorn

