Fréttir
Börnin í Mogadishu snúa aftur í þorpið
Sagan endalausa í Mogadishu heldur áfram. Nú hafa börnin okkar snúið aftur í barnaþorpið eftir að hafa búið á öruggu svæði fyrir utan borgina frá því í sumar.
Börnin flúðu þorpið í júlí eftir að átök í kringum það náðu nýjum hæðum. Miklir bardagar voru í hverfinu vikurnar á eftir en á meðan bjuggu börnin við öryggi en þröngan kost fyrir utan borgina ásamt fjölda fólks sem flúið hafði átökin í borginni. Sjá nánar hér.
Dagurinn sem börnin höfðu beðið eftir frá því í júlí rann svo loks upp þann 10. október. Mikil gleði ríkti á meðal barnanna og starfsmanna barnaþorpsins sem fá nú vonandi að búa á heimilum sínum án þess að hafa áhyggjur af byssukúlum og sprengjum.
SOS-barnaþorpin í Mogadishu fylgjast vel með stöðu mála í borginni og munu grípa til viðeigandi ráðstafana um leið og ástæða þykir til.

