Fréttir
Forsætisráðherra Keníu tekur fyrstu skóflustungu
Raila Odinga forsætisráðherra Keníu tók nýverið fyrstu skóflustunguna að nýju SOS-barnaþorpi sem mun rísa í Kisumu skammt frá Viktoríuvatni. Odinga gróðursetti einnig tré sem vonandi á eftir að veita framtíðar íbúum þorpsins skugga í hitanum.
Staðsetning nýja þorpsins er sérstaklega glæsileg með útsýni yfir flugvöllinn í Kisumu og sjálft Viktoríuvatn. Landið var gjöf til SOS frá öldungum á svæðinu sem fagna komu SOS-barnaþorpanna til Kisumu og vona að samtökin muni hjálpa fjölda barna sem orðið hafa munaðarlaus vegna alnæmis.
Fjöldi alnæmissmitaðra í Kisumu er með því mesta sem þekkist í landinu, eða tvöfalt fleiri en landsmeðaltalið. Þá eiga þúsundir barna í Kisumu enn um sárt að binda vegna þeirrar öldu ofbeldis sem gekk yfir landið í kjölfar kosninganna í fyrra.
Samhliða nýja barnaþorpinu munu SOS reka Fjölskyldueflingu á svæðinu sem mun hjálpa verst settu barnafjölskyldunum og koma í veg fyrir ótímabæran aðskilnað barna og foreldra. Allt að 6.000 manns í Kisumu og nágrenni munu geta fengið hjálp Fjölskyldueflingarinnar þegar verkefnið verður komið á fullt.
Í barnaþorpinu verða 15 fjölskylduhús fyrir vel á annað hundrað munaðarlaus og yfirgefin börn. Þá verður þar SOS-leikskóli, -samfélagsmiðstöð, -heilsugæsla og -grunnskóli.Gera má ráð fyrir að nýja barnaþorpið verði tekið í notkun árið 2011.

