Fréttir
Angelina Jolie og Brad Pitt heimsækja SOS-barnaþorp
Nýverið heimsótti óskarsverðlaunahafinn Angelina Jolie SOS-barnaþorpið í Amman í Jórdaníu ásamt kærasta sínum Brad Pitt við mikla hrifningu barnanna sem þar búa.
Það var Noor Al Hussein Jórdaníudrottning sem bauð parinu í heimsókn en hún er heiðursformaður stjórnar SOS-barnaþorpanna í Jórdaníu og hefur unnið mikið og gott starf fyrir umkomulaus börn í landinu og flóttafólk frá Írak.
Angelina Jolie var að heimsækja þorpið í annað sinn, en hún kom þangað árið 2003 og ákvað þá í kjölfarið að styrkja starfsemi þorpsins með rausnarlegu framlagi. Brad Pitt var að koma í barnaþorp í fyrsta sinn.
Árið 2007 heimsótti Angelina einnig starfsemi SOS-barnaþorpanna í Tsjad meðal flóttamanna sem flúið höfðu frá Darfur í Súdan. Í kjölfarið barst samtökunum ein milljón bandaríkjadala frá þeim Jolie og Pitt.
Parið gekk um þorpið í Amman nú á dögunum og spjallaði við börnin og starfsfólk. Angelina lét hafa eftir sér um starfsemi barnaþorpanna: „Sú aðferð sem SOS-barnaþorpin beita við að hjálpa umkomulausum börnum er með þeim allra bestu, þar sem börnin fá að vaxa og dafna í fjölskyldu í eigin menningu. Vonandi eiga fleiri eftir að kynnast SOS-barnaþorpunum og styðja þetta starf.“
Angelina Jolie var útnefnd góðgerðarsendiherra Flóttamannastofnunnar Sameinuðu þjóðanna árið 2001 og hefur heimsótt flóttamannabúðir mjög víða. Hún hefur verið iðin við að benda á ömurlegar aðstæður flóttamanna á átaksvæðum og stofnaði sérstakan sjóð ásamt Brad Pitt (the Jolie/Pitt Foundation) til að styrkja starfsemi mannúðarsamtaka sem hafa það að markmiði að lina þjáningar fólks.


