Fréttir
Flóttabörn finna ættingja sína
Undanfarnar vikur hefur starfsfólki SOS-barnaþorpanna á Sri Lanka tekist að finna nána ættingja 16 flóttabarna sem orðið höfðu viðskila við sína nánustu.
Samtökin komu upp aðstöðu fyrir umkomulaus flóttabörn í flóttamannabúðum í Chettikulam í lok sumars. Um 250.000 manns búa í búðunum og nokkur fjöldi barna sem þar býr hefur orðið viðskila við foreldra sína í þeirri borgarastyrjöld sem ríkt hefur í landinu.
175 umkomulaus flóttabörn eru nú í umsjá SOS-barnaþorpanna en tekist hefur að finna nákomna ættingja 16 barna - með tilheyrandi ánægjulegum endurfundum.
Unnið er að því að finna ættingja fleiri barna í samstarfi við önnur hjálparsamtök.
Reynist foreldrar einhverra barnanna látnir eða takist ekki að finna ættingja þeirra munu þau fá móður og heimili í SOS-barnaþorpum.

