Fréttir

Nammigrísinn
Nammigrísinn

Barnabækur til styrktar SOS - tilvaldar í jólapakkana

15.11.2009

SOS-barnaþorpin á Íslandi hafa tekið til sölu barnabækur eftir rithöfundinn Hugin Þór Grétarsson. Um er að ræða þrjár fallegar bækur og rennur stór hluti söluandvirðis til barnaþorpanna.

Hver bók kostar aðeins 1.600 kr. og eru póstburðargjöld innifalin í verðinu. 700 krónur af hverri seldri bók renna til SOS séu bækurnar keyptar á vefverslun SOS-barnaþorpanna eða á skrifstofunni í síma 564 2910.

Bækurnar eru eftirfarandi:

NammigrísinnNammigrísinn - UPPSELD

32 síður. Aldur 2-10 ára

Nonni lendir í óvæntu ævintýri þar sem galdrakarl, tannpínupúki og töfrum gætt nammitré koma við sögu.

ÞjófalandÞjófaland

56 síður. Aldur 6-12 ára

Ímyndaðu þér land troðfullt af þjófum þar sem allir ræna öllu því sem krumlur komast yfir. Grey gömlu konunum kemur varla dúr á auga um nætur og krakkar hágrenja þegar öllum leikföngunum þeirra hefur verið stolið...

Blómlegt fjölskyldulífBlómlegt fjölskyldulíf - UPPSELD

48 síður. Aldur 2-10 ára

Fjóla og fjölskyldan hennar lifa hamingjusömu lífi í blómabeði. Lífið virðist eintóm paradís. En hvað gerist þegar Fífill pabbi og mamma Rós ákveða að slíta blómabandinu?

Nánar á vefverslun SOS-barnaþorpanna.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina