Fréttir

Derek James með orðuna
Derek James með orðuna

Framkvæmdastjóri SOS í Botsvana hlýtur forsetaorðu

8.10.2009

Derek James framkvæmdastjóri SOS-barnaþorpanna í Botsvana tók nýverið á móti orðu úr hendi forseta Botsvana. Orðunni svipar til íslenska riddarakrossins.

Orðuna hlaut Derek fyrir „36 ára þrotlaust og árangursríkt starf í þágu Botsvana“.

Auk þess að vera framkvæmdastjóri SOS til fimmtán ára hefur Derek einnig sinnt ýmsum öðrum samfélagstengdum verkefnum í landinu, t.d. á sviði íþrótta- og heilbrigðismála.

SOS-barnaþorpin á Íslandi fjármögnuðu nýverið byggingu tveggja fjölskylduhúsa í nýju barnaþorpi í Botsvana en Derek hafði yfirumsjón með framkvæmdunum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina