Fréttir

Öll börnin í SOS-barnaþorpunum á Filippseyjum eru óhult
Öll börnin í SOS-barnaþorpunum á Filippseyjum eru óhult

Neyðaraðstoð á Filippseyjum

30.9.2009

Ríkisstjórn Filippseyja hefur nú óskað eftir alþjóðlegri aðstoð vegna óveðurs og flóða sem gengu yfir eyjarnar um helgina. SOS-barnaþorpin koma að neyðaraðstoð á svæðinu.

Hlutverk SOS-barnaþorpanna er að hjálpa fjölskyldum í borginni Muntinlupa, en þar er eitt SOS-barnaþorp staðsett. Samtökin útvega rúmlega 620 fjölskyldum (um 2.500 einstaklingum) mat, teppi, hreinlætisvörur og lyf. Þessar fjölskyldur hafa misst heimili sín og búa nú í barnaskóla í borginni.

Engar skemmdir urðu á barnaþorpunum í óveðrinu og börnin eru öll óhult.

Sjö SOS-barnaþorp eru á Filippseyjum og verið er að reisa það áttunda.

map_philippines_en_HR1

Til baka, Senda grein, Prenta greinina