Fréttir

Fjölskylduhús í SOS-barnaþorpinu í Bergen
Fjölskylduhús í SOS-barnaþorpinu í Bergen

Barnaþorp opnar í Noregi

24.9.2009

Í dag fer fram mikil hátíð í Bergen í Noregi þegar fyrsta SOS-barnaþorpið í landinu verður formlega tekið í notkun.

Þorpið er staðsett í Olsvik í Bergen. Þar eru 8 fjölskylduhús fyrir allt að 32 börn sem ekki aðeins munu njóta umönnunar SOS-mæðra, heldur hafa m.a. tvenn hjón hafið störf í þorpinu og gengið umkomulausum börnum í móður- og föðurstað.

En hvers vegna er eitt ríkasta land í heimi að opna barnaþorp, er virkilega þörf á því? „Við vitum að mörg börn bíða eftir að fá fósturforeldra og –heimili. Og við vitum líka að systkini í þessum sporum fá ekki alltaf að fara á sama heimilið. Þessar staðreyndir eru meðal ástæðna fyrir opnun barnaþorps hér í Noregi,“ segir Svein Grønnern framkvæmdastjóri SOS-barnaþorpanna í Noregi.

Hann bendir einnig á að algengt sé að fósturforeldrar í Noregi ákveði að hætta og þá þurfi börnin að flytja frá þeim og inn til nýrra fósturforeldra. Það geti þýtt nýjan skóla og nýja vini fyrir börnin. Í barnaþorpinu eru það fósturforeldrarnir (SOS-foreldrarnir) sem flytja út ef þeir vilja hætta. Börnin fá nýja foreldra en búa þó áfram á sínum heimilum, í sínum herbergjum, sækja sama skóla og eiga áfram sömu vinina. Röskunin verður því minni.

Rétt er að geta þess að Norðmenn fjármagna þorpið að fullu sjálfir og því er ekki þörf á fósturforeldrum frá öðrum löndum. Um 90.000 Norðmenn eru hinsvegar styrktarforeldrar barna í SOS-barnaþorpum í fátækari ríkjum heimsins.

Nánar á vefsíðu SOS-barnaþorpanna í Noregi.

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina