Fréttir

Yfir 2000 manns hafa misst heimili sín í flóðunum.
Yfir 2000 manns hafa misst heimili sín í flóðunum.

Neyðaraðstoð í Senegal

17.9.2009

Yfir 2000 manns hafa misst heimili sín í gríðarlegum rigningum í Senegal í þessum mánuði. Yfirvöld í landinu hafa beðið SOS-barnaþorpin að koma að neyðaraðstoð vegna þessa.

Mestu flóðin hafa verið í höfuðborginni Dakar og í austur- og vesturhluta Pikine. Auk þess ástands sem skapast þegar svo margir missa heimili sín er einnig mikil hætta á malaríufaraldri þar sem moskítóflugur fjölga sér ört við slíkar aðstæður. Þá eru einnig taldar miklar líkur á kólerufaraldri.

Yfirvöld í Senegal óskuðu eftir því við SOS-barnaþorpin að samtökin kæmu að neyðaraðstoð í bænum Pikine en SOS komu að samskonar aðstoð á sama svæði eftir flóð í fyrra. Samtökin munu útvega öflugar vatnsdælur og annan búnað ásamt því að dreifa vasaljósum til íbúanna. Fjórir starfsmenn SOS ásamt 45 sjálfboðaliðum munu sinna þessum störfum.

---

Fjögur SOS-barnaþorp eru í Senegal og það fimmta í byggingu. Engar skemmdir hafa orðið í þeim vegna rigninganna.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina