Úganda: skólinn að verða klár
Ef allt gengur að óskum mun framkvæmdum við nýjan grunnskóla SOS Barnaþorpanna í Úganda ljúka á næstu vikum. Íslendingar taka þátt í fjármögnun framkvæmdanna með 17 milljóna króna framlagi.
Framkvæmdir hafa gengið vel í Gulu, þar sem skólinn er staðsettur. Um 280 börn og unglingar, drengir jafnt sem stúlkur, munu stunda nám við skólann sem verður vel útbúinn og með góða kennara og annað starfsfólk en illa útbúnir skólar hafa verið eitt helsta vandamál menntakerfisins í norður Úganda undanfarin ár.
Utanríkisráðuneyti Íslands veitti 12 milljónum króna til byggingar skólans og SOS Barnaþorpin á Íslandi sömuleiðis 5 milljónum af frjálsum framlögum.
Sjá hér eldri frétt um skólann.
