Fréttasafn
Ekkert barn á að þurfa að búa á götunni eða við illan aðbúnað á munaðarleysingjaheimili
Ekkert barn á að þurfa að búa á götunni eða við illan aðbúnað á munaðarleysingjaheimili

Börnin sem hafnað var - Haítí og Suður Súdan

26.6.2012

Þessa dagana eru SOS Barnaþorpin á Haítí og í Suður-Súdan að taka á móti fjölda barna sem hefur verið hafnað og eiga enga að. Í því sambandi höfum við leitað til stuðningsaðila okkar hér á landi eftir hjálp.

Ekki er algengt að yfirvöld í samstarfslöndum SOS leiti til okkar og óski eftir því að við tökum á móti stórum hópum barna. Nú hefur það hins vegar gerst í þessum tveimur löndum.

Vertu með og gefðu þessum börnum heimili. Reikningur: 130-26-9049. Kennitala: 500289-2529.


Haítí

Fjöldi barna dvelur við hræðilegar aðstæður á illa búnum munaðarleysingjaheimilum á Haítí. Nú á að loka þeim og með ykkar hjálp munum við taka á móti allt að 200 börnum og sjá þeim fyrir góðri æsku við mannsæmandi aðstæður þar sem þau fá þörfum sínum mætt og upplifa sig elskuð.

Sum barnanna á þessum stofnunum hafa þurft að þola misnotkun og vannæringu um nokkurra ára skeið. Þeim þjáningum mun nú ljúka og börnin fá athygli, ást og umhyggju á meðan staða hvers og eins verður metin sérstaklega. Kannað verður hvort börnin eigi nána ættingja á lífi og þá hvort þeir hafi áhuga og tpa-picture-55448getu til að taka börnin að sér. Ef ekki mun börnunum bjóðast heimili í SOS Barnaþorpum en verið er að reisa tvö ný barnaþorp á Haítí.


Suður-Súdan

Nokkur þúsund flóttabörn í Súdan standa ein og óstudd eftir að hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við þá. Nú eru yfirvöld í Súdan að reka þau úr landi, yfir til Suður-Súdan. Þar tökum við á móti þeim með ykkar hjálp.

Súdan og Suður-Súdan hafa átt í hörðum deilum eftir að Suður-Súdan lýsti yfir sjálfstæði í fyrra. Yfirvöld í Súdan tilkynntu fyrir nokkru að þau hygðust reka hundruð þúsunda flóttamanna sem upphaflega komu frá Suður-Súdan aftur til sinna heima. Í þeim hópi eru fjölmörg foreldralaus börn og hafa SOS Barnaþorpin lýst sig reiðubúin til að taka á móti þeim og veita þeim líkamlega og andlega aðhlynningu. Reynt verður að sameina börnin nánum ættingjum ef slík ráðstöfun telst þeim fyrir bestu en annars stendur þeim til boða gott og kærleiksríkt heimili í SOS Barnaþorpi.

Vertu með og gefðu þessum börnum heimili. Reikningur: 130-26-9049. Kennitala: 500289-2529.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica