Fréttasafn
Our-Africa

Afríkuvefur SOS verðlaunaður

24.5.2012

Vefsíða SOS Barnaþorpanna í Bretlandi sem sýnir okkur Afríku með augum afrískra barna fékk á dögunum verðlaunin One World Award í flokknum New Media en alls voru nokkur hundruð vefir tilnefndir til verðlaunanna.

Vefurinn, sem kallast Our Africa og verður stöðugt umfangsmeiri, er hugsaður fyrir ungmenni utan Afríku sem vilja kynna sér þessa framandi heimsálfu – og leyfa jafnöldrum sínum í Afríku að sjá um kynninguna.

SOS Barnaþorpin kenndu börnum og ungmennum á upptökuvélar og klippiforrit og þau fengu svo frjálsar hendur til að útbúa kynningarmyndbönd um sína heimabyggð. Nú þegar eru hundruð myndbanda aðgengileg á vefnum og fer þeim stöðugt fjölgandi.

SOS Barnaþorpin í Bretlandi kostuðu verkefnið með hjálp stuðningsaðila og skildu svo tækjabúnað eftir víðs vegar um Afríku svo börnin og ungmennin gætu haldið áfram að sýna heimsbyggðinni hvernig lífið gengur fyrir sig í Afríku.

Myndböndin fjalla um samfélagsleg málefni, daglegt líf, dans, leiki, tónlist og trúarbrögð svo fátt eitt sé nefnt.

„Kjarninn í verkefninu eru börnin sjálf sem hafa lagt sig fram við að sýna okkur lífið í Afríku með sínum eigin augum. Þau hafa mikinn áhuga á að sýna umheiminum heimili sín, hvernig hefðbundinn dagur gengur fyrir sig og segja sögu landsins“, segir framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Bretlandi Andrew Cates. „Og börnin okkar geta svo sannarlega lært heilmikið af þessu.“

Verðlaunavefurinn Our Africa

One World Award.

SOS og One World Award



Þetta vefsvæði byggir á Eplica