Fréttasafn
Börnin taka hraustlega til matar síns í skólanum
Börnin taka hraustlega til matar síns í skólanum

Flóttabörn í Malí setjast á skólabekk

7.5.2012

134 flóttabörn stunda nú nám við skóla SOS Barnaþorpanna í Malí eftir að þau neyddust til að flýja heimili sín og skóla vegna átaka í norðurhluta landsins. Sum barnanna hafa orðið viðskila við foreldra sína.

Um 2.600 nemendur stunda nú nám við grunnskóla SOS í Mopti, Sanankoroba og Kita. Þó svo að skólarnir hafi verið þétt setnir voru skólastjórnendur, starfsfólk og nemendur sammála um að bjóða flóttabörnunum 134 pláss við skólana.

Vel gekk að útvega borð, stóla og kennslugögn fyrir börnin svo nú stunda þau námið af kappi og gert er ráð fyrir því að þau taki öll próf með öðrum nemendum við lok skólaársins og missa því ekkert úr námi þrátt fyrir að hafa flúið heimkynni sín.

Auk þess að fá tækifæri til að halda áfram í námi þrátt fyrir að hafa flúið heimabyggð sína fá börnin eina máltíð á dag í skólanum og aðgang að skólahjúkrunarfræðingum.

Mörg barnanna hafa orðið viðskila við ættingja sína en önnur eru í fylgd foreldra eða annarra ættingja.

Þú getur gerst styrktarforeldri barns í SOS Barnaþorpi með því að fylla út þetta form. Það tekur aðeins um þrjár mínútur.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica