Fréttasafn
ingo-logo

SOS Barnaþorpin undirrita INGO sáttmálann

3.5.2012

SOS Barnaþorpin hafa undirritað alþjóðlega ábyrgðarsáttmálann INGO Accountability Charter sem er sá víðtækasti sinnar tegundar fyrir alþjóðleg félagasamtök.

Aðilar að sáttmálanum heita því að vinna faglega að markmiðum sínum, bjóða upp á gagnsæi og sýna ábyrgð. Samtökin þurfa að uppfylla fjölda skilyrða, m.a. á sviði reikningshalds.

Sáttmálinn varð til vegna þrýstings frá fjölmiðlum, viðskiptalífinu og stjórnvöldum en allir þessir aðilar kölluðu eftir auknu gagnsæi alþjóðlegra félagasamtaka.

Nánar um INGO sáttmálann: http://www.ingoaccountabilitycharter.org/




Þetta vefsvæði byggir á Eplica