ABBA syngja ekki bara um SOS
Heldur fjármagna þau hús í nýju SOS Barnaþorpi
„Maður þarf að vera viss um að féð rati á réttan stað. Það var það sem réði baggamuninn. Verkefnið er áþreifanlegt og engir milliliðir sem hirða til sín hluta af fénu,“ segir gamli góði ABBA meðlimurinn Björn Ulvaeus en ABBA tekur nú þátt í fjármögnun nýs SOS Barnaþorps í Afríku.
Nýja barnaþorpið er í Bossangoa í Miðafríkulýðveldinu og verður framtíðarheimili 120 munaðarlausra og yfirgefinna barna.
Meðlimir hljómsveitarinnar, þau Agnetha Fältskog, Benny Andersson, Anni-Frid Lyngstad og Björn Ulvaeus hafa ákveðið í samstarfi við útgáfufyrirtæki sín Polar Music og Union Songs að fjármagna eitt fjölskylduhús í nýja þorpinu og sjá þannig til þess að 10 munaðarlaus og yfirgefin börn fái SOS-móður, systkini og gott heimili ásamt menntun, heilsugæslu og annað sem börnin þurfa allt þar til þau verða fær um að sjá fyrir sér sjálf.
Meðlimir ABBA kynntu sér starfsemi SOS og sáu að sú hjálp sem samtökin veita nær ekki bara til einnar sprautu, einnar skólatösku eða einnar máltíðar, heldur til allra æskuára barnanna. Í viðtali við sænska netmiðilinn di.se segir Björn: „Við erum afar heilluð af þessari nálgun SOS Barnaþorpanna, hvernig hjálpin gerir gagn til margra ára.“
Samhliða sjálfu barnaþorpinu munu SOS einnig reisa leikskóla, grunnskóla, heilsugæslustöð og samfélagsmiðstöð fyrir íbúa Bossangoa og nágrennis.
Nýja þorpið er reist í minningu sænska barnabókahöfundarins Astrid Lindgren og að mestu fjármagnað af Saltkråkan (í eigu ættingja Astrid Lindgren), leikfangaframleiðandanum Micki Leksaker og Astrid Lindgren skemmtigarðinum í Vimmerby í Svíþjóð.
Þú getur gerst styrktarforeldri barns í SOS Barnaþorpi með því að fylla út þetta form. Það tekur aðeins um þrjár mínútur.
