Fréttasafn
Heimili þessara systkina skemmdist í sprengingunni og búa þau nú í barnaþorpinu ásamt foreldrum sínum
Heimili þessara systkina skemmdist í sprengingunni og búa þau nú í barnaþorpinu ásamt foreldrum sínum

Mongólía: SOS hýsir fjölskyldur í neyð

8.2.2012

Þann 21. janúar sl. varð gassprenging í níu hæða fjölbýlishúsi í Darkhan í Mongólíu með þeim afleiðingum að 36 fjölskyldur urðu heimilislausar. SOS Barnaþorpin brugðust við neyð nokkurra fjölskyldna með því að bjóða þeim gistingu.


Frostið á svæðinu fer niður fyrir 40 gráður svo ljóst er að enginn lifir það af að vera heimilislaus, og allra síst börnin. Flestum tókst að útvega sér tímabundið athvarf hjá ættingjum en sex fjölskyldur höfðu ekki í nein hús að venda og var þeim þá boðin gisting í SOS Barnaþorpinu. Þar munu þær dvelja þar til tekist hefur að gera húsnæði þeirra íbúðarhæft á ný.


„Frostið var meira en 40 gráður og ég gat hvergi farið með konu mína og börn. Svo buðu SOS Barnaþorpin okkur gistingu og þar líður okkur vel og börnin hafa notalegt herbergi út af fyrir sig,“ sagði Naranbaatar, einn þeirra sem búa nú tímabundið í barnaþorpinu í Darkhan með fjölskyldum sínum.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica