Hungursneyð yfirvofandi
Flest bendir nú til þess að hungursneyð sé yfirvofandi í nokkrum löndum í V-Afríku. Malí, Búrkína Fasó og Senegal eru í mestri hættu. Þurrkar hafa leitt til uppskerubrests og verulega hefur gengið á matarbirgðir. SOS eru í viðbragðsstöðu vegna þessa.
Búast má við því að fólk taki að líða vegna matarskorts strax í febrúar og að hungursneyð verði svo formlega lýst yfir í mars eða apríl.
Þeir sem það geta eru byrjaðir að hamstra mat enda almennt talið að þörf verði á matvælaaðstoð til að koma í veg fyrir hungurdauða barna.
Árið 2011 var nokkuð „eðlilegt“ í Búrkína Fasó hvað uppskeru varðar. Þó þjáðust 144.000 börn af vannæringu þar. Um helmingur allra þeirra barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri deyr vegna vannæringar.
Á því svæði sem nú er í mestri hættu starfrækja SOS Barnaþorpin Fjölskyldueflingu til hjálpar verst stöddu barnafjölskyldunum. Um 4.000 börn og fjölskyldur þeirra njóta slíkrar aðstoðar nú þegar. Samtökin gera ráð fyrir að skjólstæðingum fjölgi um 30% á þessu ári.
Þá reka SOS Barnaþorpin grunnskóla í þessum löndum þar sem öllum nemendum er tryggð ein máltíð á dag.
Senegal: Fimmti hver íbúi landsins er vannærður.
Malí: Áttundi hver íbúi landsins er vannærður. Fimmta hvert barn deyr áður en það nær fimm ára aldri. Fjórða hvert barn (nærri þriðja hvert) undir fimm ára aldri er undir kjörþyngd.
Búrkína Fasó: Ellefti hver íbúi landsins er vannærður. Sjötta hvert barn deyr áður en það nær fimm ára aldri. Fjórða hvert barn undir fimm ára aldri er undir kjörþyngd.
