Fréttasafn
Drengur situr við hruninn skóla í Port-au-Prince. REUTERS/Carlos Barria
Drengur situr við hruninn skóla í Port-au-Prince. REUTERS/Carlos Barria

Haítí: Tvö ár frá jarðskjálftanum mikla

9.1.2012

Þann 12. janúar 2010 reið öflugur jarðskjálfti yfir Haítí. Yfir 230.000 manns fórust og þrjár milljónir manna slösuðust, misstu heimili sín eða urðu fyrir öðrum áföllum vegna skjálftans. Um 500 umkomulausum börnum var komið í hendur SOS Barnaþorpanna.

Tekist hefur að finna nána aðstandendur flestra þessara barna en enn búa um 130 þeirra í SOS Barnaþorpinu í Port-au-Prince. Þar hafa þau fengið SOS móður og heimili. Verið er að byggja nýtt barnaþorp í landinu fyrir þau börn sem af ýmsum ástæðum geta ekki búið hjá foreldrum sínum eða nánum ættingjum.

Þrátt fyrir að margt hafi áunnist í endurreisn Haítí hefur þeim foreldrum fjölgað jafnt og þétt sem leita til SOS Barnaþorpanna og biðja samtökin um að taka að sér börn sín vegna örbirgðar. Reynt er þá að hjálpa þeim foreldrum svo þeir geti áfram annast börnin, enda í langflestum tilvikum best fyrir börnin að alast upp með foreldrum sínum.

Auk þess að annast umkomulaus börn hafa SOS Barnaþorpin gefið tugum þúsunda barna máltíðir á hverjum degi undanfarin tvö ár og létt þannig undir með forráðamönnum þeirra. Nokkuð hefur fækkað í þessum hópi að undanförnu og í dag fá daglega á þriðja þúsund börn heita máltíð hjá SOS samtökunum.

Þá eru SOS Barnaþorpin að byggja sjö nýja og vel útbúna grunnskóla þar sem nokkur þúsund börn munu geta stundað nám hverju sinni.

Smelltu hér ef þú vilt gerast styrktarforeldri umkomulauss barns í SOS Barnaþorpi.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica