Hvirfilbylur á Indlandi
Öll börn, mæður og starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Puducherry á Indlandi er óhult eftir að hvirfilbylur gekk yfir þorpið á gamlárskvöld.
Þakflísar og annað þakefni skemmdust mikið en allir veggir stóðu af sér óveðrið. Manntjón varð nokkuð í óveðrinu og munu nokkrir tugir manna hafa týnt lífi. Enginn meiddist þó í SOS Barnaþorpunum.
Barnaþorpið og nágrenni þess urðu vatns- og rafmagnslaus strax í kjölfarið og vegir lokuðust. Starfsfólk annars SOS Barnaþorps kom strax til hjálpar með vistir og rafstöðvar.
Verið er að lagfæra skemmdirnar og er vonast til að húsin verði fljótlega komin í samt lag aftur.

