Gleðileg jól - opnunartími
SOS Barnaþorpin óska styrktaraðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.
Á árinu sýndu Íslendingar það einn einu sinni að þeir eru með hjartað á réttum stað og láta sig neyð bágstaddra varða. Aldrei hafa fleiri SOS börn átt íslenska styrktarforeldra en einmitt nú og sýnir það hug landsmanna til málefnisins.
Við hlökkum til að þjónusta íslenska styrktaraðila og skjólstæðinga okkar erlendis á árinu 2012.
Opnunartími skrifstofu samtakanna yfir hátíðarnar verður sem hér segir:
23. desember: 10 - 17
27. - 29. desember: 10 - 16
30. desember: 10 - 15
2. janúar: Lokað
