Valgreiðslur í heimabanka
Með því að greiða valgreiðslu frá SOS Barnaþorpunum í heimabankanum þínum tekur þú þátt í að gefa munaðarlausum og yfirgefnum börnum nýja móður, gott heimili og góða æsku.
SOS hafa allt frá árinu 1949 tekið að sér umkomulaus börn og gefið þeim ný tækifæri í kjölfar foreldramissis. Í dag eru samtökin með um 80.000 börn á sínu framfæri í yfir 500 barnaþorpum í um 120 löndum, auk þess að styðja yfir 300.000 börn í brothættum fjölskyldum um allan heim.
Skjólstæðingar samtakanna hafa aldrei verið fleiri.
Við látum okkur ekki nægja að gefa umkomulausum börnum máltíð, skólatösku eða lyf, heldur sjáum þeim fyrir ástríku heimili og mætum öllum öðrum grunnþörfum þeirra þar til þau hafa lokið menntun og eru tilbúin að standa á eigin fótum (oft um tvítugt).
Við vonum að þú sjáir þér fært að styrkja barnahjálparstarf SOS með því að greiða valgreiðsluna.
Ef ekki, vonum við að hún hafi ekki valdið þér óþægindum og viljum benda þér á aðferð til að losna við hana með einföldum hætti.
Aðhafist þú ekkert, mun krafan detta út sjálfkrafa að ákveðnum tíma liðnum.
Hjartans þakkir fyrir stuðninginn!
Til að losna við valgreiðslu úr heimabanka:
Arion Banki - Hægra megin við kröfuna er flipi sem kallast „Aðgerðir“. Veldu hann og síðan „Eyða kröfu“.
Íslandsbanki - Veldu „Ógreiddir reikningar“ og svo flipann „Valgreiðslur“. Hakaðu í reit fyrir framan kröfuna og veldu svo „Fela“.
Landsbankinn - Veldu „Ógreiddir reikningar“ og þá birtast valgreiðslur. Hakaðu í reit fyrir framan kröfuna og veldu svo „Eyða völdum reikningum“.
MP banki - Hægra megin við kröfuna velur þú örina og svo „Fela reikning“.
Sparisjóðirnir - Veljið „Ógreiddir reikningar“ og svo flipann „Valgreiðslur“. Hægra megin við „Greiða“ hnappinn, aftast í kröfulínunni er lítill hnappur með ör. Veljið hann og svo „Fela reikning“.
