Sambía: Innbrot í barnaþorp
Upp úr miðnætti aðfaranótt sl. sunnudags brutust vopnaðir menn inn í SOS Barnaþorpið í Lusaka í Sambíu. Börnin sakaði ekki en öryggisvörður lét lífið.
Mennirnir ruddust inn í þorpið og brutust inn í skrifstofubygginguna. Lögreglan kom fljótt á staðinn og hurfu þá mennirnir út í nóttina.
Öryggisvörðurinn Honest Milimo slasaðist alvarlega þegar hann reyndi að verja barnaþorpið og lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Aðrir slösuðust ekki og engu var stolið en bæði starfsfólk barnaþorpsins og börnin urðu fyrir miklu áfalli við þennan atburð.
Ekki er vitað hver ætlun ódæðismannanna var en lögregla leitar þeirra. Öryggisgæsla við barnaþorpið hefur þegar verið efld.
Velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna í Sambíu og forsetafrú landsins, Thandiwe Banda (Wikipedia síða um forsetann), heimsótti barnaþorpið í kjölfar atburðarins og ræddi við börnin og starfsfólk þorpsins. Þá sendi hún samúðarkveðjur til aðstandenda hins látna öryggisvarðar og óskaði eftir því að fá að greiða útför hans úr eigin vasa.
