Fréttasafn

Skjólstæðingar SOS Barnaþorpanna á Haítí

Haítí: Flytja af munaðarleysingjaheimilum í SOS Barnaþorp - 30.1.2012

Nú þegar rúm tvö ár eru liðin frá mannskæðum jarðskjálfta á Haítí hafa yfirvöld þar ásamt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (Unicef) beðið SOS Barnaþorpin um að taka að sér 200 börn frá illa búnum munaðarleysingjaheimilum.

 
Uppskera hefur brugðist í m.a. Malí, Búrkína Fasó og Senegal

Hungursneyð yfirvofandi - 20.1.2012

Flest bendir nú til þess að hungursneyð sé yfirvofandi í nokkrum löndum í V-Afríku. Malí, Búrkína Fasó og Senegal eru í mestri hættu. Þurrkar hafa leitt til uppskerubrests og verulega hefur gengið á matarbirgðir. SOS eru í viðbragðsstöðu vegna þessa.

 
Drengur situr við hruninn skóla í Port-au-Prince. REUTERS/Carlos Barria

Haítí: Tvö ár frá jarðskjálftanum mikla - 9.1.2012

Þann 12. janúar 2010 reið öflugur jarðskjálfti yfir Haítí. Yfir 230.000 manns fórust og þrjár milljónir manna slösuðust, misstu heimili sín eða urðu fyrir öðrum áföllum vegna skjálftans. Um 500 umkomulausum börnum var komið í hendur SOS Barnaþorpanna.

 
Húsþökin í barnaþorpinu í Puducherry skemmdust mikið í óveðrinu

Hvirfilbylur á Indlandi - 4.1.2012

Öll börn, mæður og starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Puducherry á Indlandi er óhult eftir að hvirfilbylur gekk yfir þorpið á gamlárskvöld.

 
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár!

Gleðileg jól - opnunartími - 23.12.2011

SOS Barnaþorpin óska styrktaraðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.

 
Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnarsdóttir hjá Bílabúð Benna og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi, handsala samstarfssamning.

Bílabúð Benna styrkir SOS í Afríku - 21.12.2011

Bílabúð Benna hefur afhent SOS Barnaþorpunum framlag að upphæð kr. 700.000 sem rennur óskipt til barnahjálpar samtakanna í Gambíu í V-Afríku.

 
Börn í SA-Eþíópíu fá hrísgrjón að borða

14 milljónir vegna hungursneyðar - 15.12.2011

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja 10 milljónir króna til neyðaraðstoðar SOS Barnaþorpanna við sómalska flóttamenn í Eþíópíu. Neyðinni í A-Afríku er hvergi nærri lokið.

 
Héraðsstjóri San Roman þakkar fulltrúa SOS Barnaþorpanna fyrir stuðninginn við umkomulaus börn í Juliaca

Nýtt SOS Barnaþorp í Perú - 6.12.2011

Þann 14. nóvember sl. var stór dagur fyrir umkomulaus börn í bænum Juliaca í Perú en þá var opnað þar nýtt SOS Barnaþorp fyrir 120 börn.

 
Tvær stúlkur í nýja barnaþorpinu í Dosso

Nýtt SOS Barnaþorp í Níger - 5.12.2011

Nú á dögunum var nýtt barnaþorp tekið í notkun í Afríkuríkinu Níger. 120 börn sem sum þurftu áður að betla á götum úti eiga nú gott heimili, SOS-móður, systkini og fá að ganga í góðan skóla.

 
Móðir og barn í flóttamannabúðum skammt frá Mogadishu í Sómalíu

Neyðaraðstoð í A-Afríku: Hvað eru SOS Barnaþorpin að gera? - 1.12.2011

Frá því að SOS Barnaþorpin hófu neyðaraðstoð í Austur-Afríku í júlí sl. hafa samtökin bjargað mannslífum og bætt lífsskilyrði yfir 70.000 fórnarlamba hungursneyðarinnar.

 
Frá SOS Barnaþorpinu í Tuxtla Gutiérrez

Valkröfur í heimabanka - 1.12.2011

Með því að greiða valkröfu frá SOS Barnaþorpunum í heimabankanum þínum tekur þú þátt í að gefa munaðarlausum og yfirgefnum börnum nýja móður, gott heimili og góða æsku.

 
Frá opnunarhátíð nýja barnaþorpsins í Cartagena

Nýtt SOS Barnaþorp í Kólumbíu - 28.11.2011

Nýtt SOS Barnaþorp var formlega tekið í notkun í Kólumbíu þann 18. nóvember sl. að viðstöddum fulltrúum alþjóðasamtaka SOS, yfirvalda, svissneskra styrktaraðila og nágranna þorpsins.

 
Blessuð sé minning Marevie

Haítí: Marevie litla er látin - 21.11.2011

Okkur hafa borist sorgarfréttir frá SOS Barnaþorpinu í Santo (Port-au-Prince) á Haítí: Marevie, sem starfsfólk SOS fann nær dauða en lífi nokkrum vikum eftir skjálftann í fyrra, lést í fyrradag úr hjartagalla.
 
map-russia-en

Nýtt barnaþorp í Rússlandi - 15.11.2011

Í lok október fluttu fyrstu átta börnin í nýtt SOS Barnaþorp í Vologda í Rússlandi. Börnunum mun svo fjölga smám saman en þorpið á að geta tekið við allt að sextíu umkomulausum börnum.

 
Börn í SOS Barnaþorpi í Jórdaníu

Fædd utan hjónabands - 10.11.2011

Í Jórdaníu eru hjúskaparbrot flokkuð sem glæpur sem fangelsisvist liggur við. Þannig eru börn ekki aðeins aðskilin frá foreldrum sínum heldur missa þau líka ættarnafn sitt. Nýverið stóðu SOS Barnaþorpin í Jórdaníu fyrir málþingi um réttindi barna sem fæðast utan hjónabands.

 
Tana á hjólinu sínu

Hjólað fyrir SOS - 10.11.2011

Ung kanadísk kona hefur undanfarna 16 mánuði hjólað yfir þvert og endilangt Kanada (og farið ýmsar krókaleiðir) fyrir SOS Barnaþorpin.

 
Glaðbeitt börn í SOS Barnaþorpi í Gambíu

Fékkstu símtal frá okkur? - 9.11.2011

Þessa dagana erum við að hringja í einstaklinga sem styrkt hafa SOS Barnaþorpin á undanförnum árum og bjóða þeim að endurnýja stuðning sinn við munaðarlaus og yfirgefin börn.

 
Frá flóttamannabúðunum í Badbado þar sem SOS Barnaþorpin hafa starfað undanfarna mánuði

Sómalía: Flóttamenn eygja von - 2.11.2011

Fjöldi flóttamanna í Sómalíu hefur nú yfirgefið flóttamannabúðir og snúið aftur heim, vitandi að SOS Barnaþorpin munu áfram styðja þá og fjölskyldur þeirra.
 
Hreindýr

Jólakortin 2011 komin í hús - 27.10.2011

Jólakort SOS Barnaþorpana 2011 eru komin í hús. Þau eru eftir listakonuna Ingibjörgu Eldon Logadóttur og eru skreytt með gull- og silfurfólíu.

 
Mikael, Sofia, Guðrún Lilja og Katrín

Götusala á menningarnótt - 21.10.2011

SOS Barnaþorpunum hefur borist 9.000 kr. framlag frá fjórum börnum sem seldu vörur til styrktar SOS á menningarnótt í ágúst síðastliðinn.

 
Hermenn sendu sjúklingana heim, sama hversu veikburða þeir voru

Sjúkrahús SOS í Mogadishu lokað - 21.10.2011

Eina sjúkrahúsinu í Sómalíu sem ekki krefur sjúklinga sína um greiðslu er nú haldið lokuðu af stríðandi fylkingum. Þetta er Sjúkrahús SOS í Mogadishu.

 
Frá nýja SOS Barnaþorpinu í Persan

Nýtt SOS Barnaþorp í Frakklandi - 17.10.2011

Þann 8. október sl. opnaði nýtt SOS Barnaþorp í Frakklandi. Þorpið er í bænum Persan í Norður-Frakklandi og hafa 49 umkomulaus börn fengið þar heimili.

 
Fra_SOS-barnatorpinu_i_Mogadishu

Skotárás á barnaþorp og sjúkrahús - 11.10.2011

Undanfarna þrjá daga hafa starfsstöðvar SOS Barnaþorpanna í Mogadishu í Sómalíu orðið fyrir skot- og sprengjuárásum. Einn starfsmaður SOS lét lífið en börnin sakaði ekki.
 
Eldri maður fær leiðbeiningar um notkun kortsins

Rafræn matarkort í baráttunni við hungursneyð - 5.10.2011

SOS Barnaþorpin í Kenýu hafa farið ótroðnar slóðir í baráttunni við hungursneyð í landinu undanfarnar vikur. Rafrænum matarkortum hefur verið dreift til þeirra fjölskyldna sem í mestri þörf eru.
 
Djíbútí

SOS hefja störf í Djíbútí - 27.9.2011

SOS Barnaþorpin eru nú að hefja starfsemi í nýju landi: Djíbútí í Austur-Afríku. Framkvæmdir við fyrsta barnaþorpið í landinu hefjast strax í næsta mánuði. Samhliða þorpinu verður byggður SOS leikskóli.

 
tpa-picture-53395

Sambía: Innbrot í barnaþorp - 22.9.2011

Upp úr miðnætti aðfaranótt sl. sunnudags brutust vopnaðir menn inn í SOS Barnaþorpið í Lusaka í Sambíu. Börnin sakaði ekki en öryggisvörður lét lífið.

 
Ungur umkomulaus drengur svefur svefni hinna réttlátu á heimilinu

Yngstu umkomulausu börnin - 19.9.2011

Hús eitt í barnaþorpi í Gambíu er ólíkt öllum hinum húsunum þar. Þeir sem stíga fæti inn í húsið gefa sig nær undantekningalaust á vald tilfinninganna og vilja helst ekki fara aftur út. Húsið er bráðabirgðaheimili fyrir umkomulaus ungabörn.

 
Mæður standa með börn sín í röð við heilsugæslustöð SOS í flóttamannabúðunum í Baidoa í Sómalíu

Sómalía: Neyðaraðstoð SOS aukin - 16.9.2011

SOS Barnaþorpin í Sómalíu hafa ákveðið að auka neyðaraðstoð sína til að draga úr hugsanlegum áhrifum mislingafaraldurs, bráðaniðurgangs og annarra sjúkdóma. SOS og önnur hjálparstamtök í Sómalíu eru nú í miklu kappi við tímann.

 
Börnin við heimkomuna

Snúa aftur heim í barnaþorpið - 15.9.2011

Þau eru komin aftur heim í barnaþorpið; börnin sem þurftu að flýja heimili sín í Abobo-Gare á Fílabeinsströndinni vegna vopnaðra átaka í febrúar sl.

 
Drengur við sjúkraskýli SOS Barnaþorpanna í Badbado flóttamannabúðunum í Mogadishu

Staðan í Sómalíu - 9.9.2011

„Allir í Mogadishu vita um SOS Barnaþorpin“ er fullyrðing sem oft heyrist í stríðshrjáðri höfuðborg Sómalíu; borg sem mörg alþjóðleg hjálparsamtök hafa þurft að yfirgefa. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Mogadishu síðan snemma á níunda áratugnum.

 
Þróunarsamvinna ber ávöxt!

Þróunarsamvinna ber ávöxt - 2.9.2011

Frjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að kynningu á þróunarmálum í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands dagana 5.-7. september.

 
Læknir SOS skoðar barn í flóttamannabúðum

Sómalía: Ný heilsugæslustöð SOS - 30.8.2011

SOS Barnaþorpin hafa opnað nýja heilsugæslustöð á þurrkasvæðunum í Sómalíu. Stöðin er staðsett í Abbas flóttamannabúðunum.

 
Upptök jarðskjálftans voru skammt frá SOS Barnaþorpinu í Santo

Haítí: SOS og jarðskjálftinn - 30.8.2011

Nú þegar rúmt eitt og hálft ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla á Haítí (12.jan.2010) lítum við um öxl og skoðum hvernig neyðaraðstoð SOS nýttist nauðstöddum – og mun nýtast íbúum landsins um ókomin ár.

 
Barn drekkur vatn úr flöskutappa. Ljósm. Jens Honoré

Austur Afríka: Barist við dauðann - 28.8.2011

Neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna í Sómalíu, Eþíópíu og Keníu er nú unnin af miklum þunga en neyðin á enn eftir að aukast á svæðinu. Nokkur hundruð þúsund börn heyja nú harða baráttu við sjálfan dauðann.

 
Starfsfólk SOS í Nairobi undirbýr sendingu hjálpargagna til Marsabit

Neyðaraðstoð í Keníu - 19.8.2011

SOS Barnaþorpin sinna nú umfangsmiklu hjálparstarfi vegna hungursneyðar í Austur Afríku. Umfangið er mest í Sómalíu en samtökin eru einnig að störfum í Eþíópíu og Keníu.

 
Læknir SOS skoðar barn í flóttamannabúðum

Barnaþorpið í Mogadishu rýmt - 17.8.2011

Í gær þurftu börnin í SOS Barnaþorpinu í Mogadishu í Sómalíu að yfirgefa þorpið vegna harðra bardaga stjórnarhersins og sveita al Shabaab í nágrenni þorpsins. Einnig þurfti að rýma sjúkrahús SOS í borginni af sömu ástæðu.

 
Bifreiðin sem Chevrolet gaf nyrsta SOS Barnaþorpi í heimi

Chevrolet afhendir SOS bíl nr.50 - 12.8.2011

Hann var af stærri gerðinni, pakkinn sem börnin og SOS mæðurnar í Lapplandi fengu á dögunum. Chevrolet afhenti þá bíl nr. 50 af þeim hundrað sem bílaframleiðandinn gefur SOS Barnaþorpunum á 100 ára afmælisári Chevrolet.

 
Frá einni útförinni í Noregi

Noregur: Aðstandendur fórnarlamba vísa á SOS - 11.8.2011

Í síðustu viku fóru fram útfarir fórnarlamba fjöldamorðanna í Osló og Útey. Gríðarlegur fjöldi fólks fylgdi hinum látnu til grafar. Fjölskyldur nokkurra fórnarlamba afþökkuðu blóma og kransa og vísuðu þess í stað á SOS Barnaþorpin.

 
Pípulagningarmenn framtíðarinnar á Haítí

Haítí: 350 útskrifast úr verknámsskóla - 10.8.2011

Nú á dögunum útskrifaði Verknámsskóli SOS Barnaþorpanna í Cap Haitien á Haítí 350 pípulagningarmenn, snyrtifræðinga, húsgagnasmiði, bifvélavirkja o.fl. Þau eiga öll að geta fengið vinnu.

 
Móðir með barn sitt á heilsugæslustöð SOS í flóttamannabúðunum í Badbado í Sómalíu

A-Afríka: SOS hjálpa við hörmulegar aðstæður - 4.8.2011

Pólitískur óstöðugleiki, veikir innviðir og gríðarlegt umfang vandans koma í veg fyrir að þurfandi fái hjálp á þurrkasvæðunum í A-Afríku. Reynsla SOS Barnaþorpanna og áunnið traust gerir samtökunum nú kleift að ná til hinna þurfandi.

 
tpa-picture-54119

Neyðaraðstoð í A-Afríku - 2.8.2011

Milljónir íbúa í löndunum á horni Afríku (Eþíópíu, Sómalíu, Djíbútí og Keníu) berjast nú fyrir lífi sínu vegna mestu þurrka á svæðinu í marga áratugi. SOS Barnaþorpin hafa mikla reynslu frá þessu svæði og sinna nú hjálparstarfi í sívaxandi mæli.

 
Skóli ársins í Gambíu 2011

Skóli ársins í Gambíu - 14.7.2011

Grunnskóla SOS Barnaþorpanna í Basse áskotnaðist sá heiður á dögunum að vera valinn skóli ársins í Gambíu. Það var menntamálaráðuneyti Gambíu sem veitti skólanum þennan eftirsóknarverða titil.

 
tpa-picture-53787

SOS ryður brautina á sviði sólarorku - 11.7.2011

Sú var tíð að jarðefnaeldsneyti var eini almenni orkugjafinn í Afríku og þó víðar væri leitað. Nýverið tóku SOS Barnaþorpin í Keníu í notkun öflugt sólarorkukerfi, það fyrsta sinnar tegundar í landinu.

 
Frá SOS Barnaþorpinu í Tuxtla Gutiérrez

Þar sem allir eru jafnir - 8.7.2011

Í SOS Barnaþorpunum í Mexíkó búa fötluð og ófötluð börn saman og lögð er áhersla á að hvert barn fái þörfum sínum mætt, hvort sem það er fatlað eða ekki.

 
Íbúar nýs ríkis og SOS Barnaþorpsins í Malakal

Nýtt ríki verður til - 8.7.2011

Laugardagurinn 9. júlí 2011 verður lengi í minnum hafður meðal íbúa Suður-Súdan en það er opinber stofndagur þess nýja ríkis. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Suður-Súdan í meira en áratug.

 
Helmut Kutin ásamt nokkrum börnum úr barnaþorpinu í Hargeisa og forstöðumanni þorpsins

Fyrsta SOS Barnaþorpið í Sómalílandi - 1.7.2011

Nú á dögunum var fyrsta SOS Barnaþorpið í Sómalílandi formlega tekið í notkun í Hargeisa. 120 börn sem ekki geta búið hjá fjölskyldum sínum fá heimili í þorpinu auk þess sem SOS reka heilsugæslu og Fjölskyldueflingu á staðnum.

 
tpa-picture-42553b

Hvert fara framlögin? - 28.6.2011

Þrátt fyrir djúpa efnahagslægð, aukið atvinnuleysi, lánaerfiðleika og það almenna ástand sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin þrjú ár, og við köllum í daglegu tali kreppu, hafa stuðningsaðilar SOS Barnaþorpanna hér á landi sýnt það og sannað að umkomulaus börn hins stóra heims eru ekki gleymd.

 
Börnin sungu þjóðsöng Úganda við opnunina

Nýtt SOS Barnaþorp í Úganda - 27.6.2011

Sl. fimmtudag opnaði Helmut Kutin alþjóðaforseti SOS nýtt barnaþorp í Úganda. Eitt fjölskylduhús í þorpinu var fjármagnað af Íslendingum.

 
Damián Lopéz

Hjólaði 52 þúsund kílómetra fyrir SOS - 22.6.2011

„Börnin eru ástæðan fyrir því að ég lagði upp í þessa ferð og þau hafa svo sannarlega hvatt mig til dáða,“ segir Damián López sem nýverið lauk hjólreiðaferð sinni þvert yfir norður og suður Ameríku, frá Alaska í norðri til Ushuaia í suðri.
 
Með tilkomu nýja skólans er gert ráð fyrir að námsárangur barna í Gulu muni aukast

Utanríkisráðuneytið styrkir byggingu skóla í Úganda - 9.6.2011

Utanríkisráðuneyti Íslands hefur ákveðið að koma að fjármögnun grunnskóla SOS Barnaþorpanna í Úganda með 12 milljóna króna framlagi.

 
Frá nýja SOS Barnaþorpinu í Grikklandi

Nýtt SOS Barnaþorp í Grikklandi - 8.6.2011

Þriðja SOS Barnaþorpið í Grikklandi hefur verið tekið í notkun í úthverfi Alexandroupolis. 40 áður umkomulaus börn hafa fengið heimili og SOS-móður barnaþorpinu.

 
Starfsfólk SOS í Líberíu gefur flóttafólki mat

Neyðaraðstoð í Líberíu - 3.6.2011

Þúsundir manna hafa flúið óeirðir og ofbeldi á Fílabeinsströndinni yfir til nágrannaríkisins Líberíu. Hjálparsamtök gera það sem í þeirra valdi stendur til að lina þjáningar fólksins sem komið hefur sér fyrir í flóttamannabúðum og á þéttbýlisstöðum. SOS Barnaþorpin taka þátt í hjálparstarfinu.

 
Drengir í barnaþorpinu í Malakal

Áhyggjur af stöðu mála í Súdan - 3.6.2011

Nú þegar aðeins einn og hálfur mánuður er þar til Suður Súdan verður sjálfstætt ríki hafa óeirðir blossað upp í Abyei héraði, við væntanleg en óljós landamæri Norður- og Suður Súdans. Talið er að á bilinu 60.000 – 80.000 manns, aðallega konur og börn, hafi flúið héraðið. SOS Barnaþorpin eru fjarri svæðinu en samtökin fylgjast þó náið með þróun mála.

 
Glaðbeitt börn í SOS Barnaþorpi í Gambíu

Samstarf til góðra verka - 1.6.2011

SOS Barnaþorpin á Íslandi og Bílabúð Benna hafa gert með sér samstarfssamning í tilefni af 100 ára afmæli Chevrolet bílaframleiðandans.

 
Börn sem sækja frístundaheimili SOS í Bedúínaþorpinu Tabash

Bedúínar njóta aðstoðar SOS í Ísrael - 30.5.2011

SOS Barnaþorpin í Ísrael reka tvö frístundaheimili fyrir börn Araba úr flokki Bedúína. Samfélag Bedúína er yfir sig hrifið af heimilunum og þrýstir á samtökin um opnun þriðja heimilisins.

 
Félagsráðgjafanna bíða nú krefjandi verkefni, enda félagsleg vandamál í Gambíu gríðarleg

19 félagsráðgjafar útskrifast í Gambíu - 27.5.2011

Nú á dögunum útskrifuðu SOS Barnaþorpin í Gambíu 19 nemendur sem lokið höfðu námi í félagsráðgjöf .

 
Stúlka sem eignast hefur heimili í barnaþorpinu færir dönsku prinsessunni blóm

Nýtt SOS Barnaþorp í Rúanda - 20.5.2011

Nú á dögunum opnaði danska prinsessan Benedikte nýtt SOS Barnaþorp í Kayonza í Rúanda. Barnaþorpið verður framtíðarheimili 120 umkomulausra barna.

 
Garðheimar

Blómakaupendur greiða nám tveggja SOS-mæðra - 17.5.2011

SOS Barnaþorpin og Garðheimar tóku höndum saman á mæðradeginum, þann 8. maí, og söfnuðu fé til menntunar SOS-mæðra. Af hverjum seldum mæðradagsvendi runnu 100 krónur til málefnisins.

 
Þessi dýrmætu augnablik - rafbók

Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar - 13.5.2011

Sunnudagurinn 15. maí er alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar. Þá er ekki aðeins gott að þakka fyrir sína eigin fjölskyldu, heldur einnig að minnast og rétta hjálparhönd öllum þeim milljónum barna sem ekki eiga ástríka foreldra eða aðra forráðamenn.

 
Framkvæmdastjóri SOS í Síerra Leóne tekur við viðurkenningu forseta landsins f.h. samtakanna

Viðurkenning í Síerra Leóne - 6.5.2011

Á dögunum veitti Ernest Bai Koroma, forseti Síerra Leóne, alþjóðaforseta SOS Barnaþorpanna, Helmut Kutin viðurkenningu fyrir störf samtakanna í þágu munaðarlausra og yfirgefinna barna í landinu undanfarin 36 ár.

 
Starfsþjálfunin tekur tvö ár (Botsvana)

Garðheimar styðja mæðraskóla SOS í Afríku - 4.5.2011

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Garðheima og SOS Barnaþorpanna. Samningurinn felur það í sér að fyrir hvern seldan mæðradagsblómvönd renna 100 krónur til starfsþjálfunar SOS-mæðra í Afríku.

 
Hermann umvafinn börnum í barnaþorpi í Tælandi.

Öll heimsins börn eru börnin okkar - 27.4.2011

25 ár eru liðin frá því að stofnandi SOS Barnaþorpanna, Hermann Gmeiner, lést 66 ára að aldri. Hermann var einstakur maður sem ákvað að helga líf sitt baráttunni fyrir velferð munaðarlausra og yfirgefinna barna.

 
tpa-picture-42553b

Laust starf: Verkefnisstjóri - 23.4.2011

SOS Barnaþorpin leita að kröftugum einstaklingi í tímabundið starf til að stýra nokkurra mánaða átaksverkefni meðal fyrirtækja hér á landi.

 
Yfir 300.000 fjölskyldur eru enn heimilislausar í Muzaffargarh héraði einu

Pakistan: 200 fjölskyldur fá heimili - 20.4.2011

Nú þegar rúmir átta mánuðir eru liðnir frá mannskæðum flóðum í Pakistan hafa SOS Barnaþorpin hætt matvæladreifingu á flóðasvæðunum og snúið sér að því að byggja hús fyrir heimilislausar fjölskyldur.

 
Frá nýja barnaþorpinu í Kinshasa

Styttist í opnun í Kongó - 15.4.2011

Framkvæmdir við nýtt barnaþorp, leikskóla, grunnskóla og heilsugæslustöð í Kinshasa í Kongó eru vel á veg komnar. Nýráðnar SOS-mæður sitja nú námskeið í umönnun barna og rekstri heimilis.

 
Drengir í barnaþorpinu í Malakal

Fá loks að snúa heim í barnaþorpið - 8.4.2011

Fyrir tæpum mánuði sögðum við frá því að vopnaðir uppreisnarmenn hafi tekið barnaþorpið í Malakal í Súdan í gíslingu og flytja hafi þurft öll börnin í öruggt skjól. Þau gleðitíðindi voru að berast að börnin hafa nú snúið aftur til síns heima; í barnaþorpið.

 
Drengur leikur sér með blöðru í neyðarskýli. REUTERS/Yuriko Nakao

SOS tekur við munaðarlausum börnum í Japan - 19.3.2011

Yfirvöld í Japan hafa óskað eftir því við SOS Barnaþorpin að samtökin taki að sér börn sem misstu foreldra sína í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni á dögunum.

 
map-sudan-en

Súdan: skotbardagi í barnaþorpi - 14.3.2011

Ófremdarástand skapaðist í SOS Barnaþorpinu í Malakal í Suður Súdan um helgina þegar vopnaðir uppreisnarmenn tóku þorpið í gíslingu. Starfsfólki tókst að koma börnunum í öruggt skjól.
 
SOS Barnaþorpið í Fukuoka í Japan

Jarðskjálfti í Japan - 11.3.2011

Sem kunnugt er reið gríðarstór jarðskjálfti yfir Japan í morgun. Hvorki skjálftinn né flóðbylgjur þær sem fylgdu í kjölfarið virðast hafa valdið neinum skaða í SOS Barnaþorpunum í Asíu.

 
Flest barnanna hafa upplifað alvarleg áföll þrátt fyrir ungan aldur

Nýtt barnaþorp í Rússlandi - 3.3.2011

Þau gleðitíðindi áttu sér stað rétt fyrir síðustu jól að nýtt SOS Barnaþorp í Rússlandi tók á móti fyrstu umkomulausu börnunum sem þar munu alast upp undir verndarvængjum SOS mæðra.

 
Börn að leik í leikskóla SOS Barnaþorpsins í Abobo-Gare.

Barnaþorp rýmt af öryggisástæðum - 25.2.2011

Ófremdarástand ríkir nú á Fílabeinsströndinni og fer versnandi. Barist hefur verið með skotvopnum nærri SOS Barnaþorpinu í Abobo-Gare, sem er í úthverfi borgarinnar Abidjan og ákveðið hefur verið að rýma barnaþorpið.

 
Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna í Marokkó borða kúskús

Enn hækkar matvælaverð - 18.2.2011

Miklar verðhækkanir á nauðsynjum, s.s. matvælum, hafa komið illa við almenning í Norður Afríku og Miðausturlöndum. Þó svo að hækkanirnar hafi mest áhrif á fátækar barnafjölskyldur knýja þær einnig dyra hjá SOS Barnaþorpunum.

 
Kumpánlegur forsætisráðherra Kambódíu heilsar nemendum nýja skólans

Nýr grunnskóli í Kambódíu - 11.2.2011

Nýverið opnaði forsætisráðherra Kambódíu formlega nýjan grunnskóla SOS Barnaþorpanna í höfuðborginni Phnom Penh. Yfir 200 nemendur munu stunda nám við skólann.

 
Börn í barnaþorpinu í Malakal útbúa veggspjald

Ólga í Suður Súdan - 8.2.2011

Um 150 fjölskyldur hafa leitað skjóls í SOS Barnaþorpinu í Malakal eftir mannskæð átök á svæðinu sem brutust út vegna birtingar á úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði S-Súdan.

 
Frá SOS Barnaþorpinu í Anuradhapura

Flóð á Sri Lanka - 8.2.2011

Eftir miklar rigningar á Sri Lanka liggur nú vatn að hluta til yfir SOS Barnaþorpinu í Anuradhapura. Sorp flýtur um og lítið lát er á úrkomunni.

 
SOS móðir og barn í barnaþorpinu í Tanta

Egyptaland: Innbrot í tvö barnaþorp - 3.2.2011

Brotist hefur verið inn í tvö SOS Barnaþorp í Egyptalandi; í Kaíró og Alexandríu. Börnin og SOS mæðurnar eru óhult en forstöðumaður annars þorpsins slasaðist lítillega.

 
Nokkur börn frá SOS Barnaþorpinu í Tanta (hér ásamt svissnesku söngkonunni Francine Jordi)

Egyptaland: Ekkert amar að börnunum - 31.1.2011

Eins og kunnugt er hafa mikil mótmæli staðið yfir í Egyptalandi undanfarna daga. Þrjú SOS Barnaþorp eru í landinu og ekkert amar að börnunum.

 
SOS móðir í Awassa eldar með heimatilbúnu lífrænu gasi

Lífrænt gas framleitt í barnaþorpi - 25.1.2011

Neyðin kennir naktri konu að spinna og SOS mæðrum að framleiða lífrænt gas til eldunar þegar aðrir orkugjafar reynast of dýrir.

 
Farvegur aurskriðu

Brasilía: Hugað að vegalausum börnum - 20.1.2011

Gríðarlegar rigningar í Brasilíu hafa víða valdið flóðum og aurskriðum með tilheyrandi eignatjóni og mannfalli. Yfirvöld hafa nú beðið SOS Barnaþorpin um að taka tímabundið að sér börn sem virðast hafa misst sína nánustu.

 
Angelina-Jolie-og-Nathalie-Nozile.-Ljosm.-Chris-Polk,-Getty-Images.-All-Rights-Reserved.

Haítí: Jolie og Pitt umhugað um réttindi barna - 17.1.2011

Nathalie Nozile, nýútskrifaður lögfræðingur sem ólst upp í SOS Barnaþorpinu í Santo á Haítí, hefur verið valin fyrsti fulltrúi Jolie-Pitt sjóðsins á Haítí.

 
Upptök jarðskjálftans voru skammt frá SOS Barnaþorpinu í Santo

Haítí - eitt ár frá skjálftanum - 11.1.2011

Miðvikudaginn 12. janúar er eitt ár liðið frá jarðskjálftanum á Haítí. Áætlað er að um 230.000 manns hafi látið lífið í skjálftanum, sem var 7.3 á Richter.

 
Þessa dagana eru fyrstu börnin að flytja í nýja barnaþorpið.

Utanríkisráðuneytið fjármagnar heimili fyrir börn í Úganda - 29.12.2010

Utanríkisráðuneytið mun fjármagna byggingu heimilis fyrir umkomulaus börn í nýju SOS Barnaþorpi í Úganda.

 
Gleðileg jól og farsælt nýtt ár!

Gleðileg jól! (myndband) - 22.12.2010

SOS Barnaþorpin óska styrktaraðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.

 
Frá nýja barnaþorpinu í Quthing

Nýtt barnaþorp í Lesótó - 17.12.2010

Lesótó er lítið land, umvafið nágranna sínum S-Afríku á allar hliðar. Nú á dögunum var nýtt SOS Barnaþorp formlega tekið í notkun í landinu, en fyrir var eitt barnaþorp í Lesótó.

 
Börnin á Álfaheiði senda Lúkasi gjöfina

Íslensk leikskólabörn styrkja dreng í Argentínu - 17.12.2010

Lúkas er ellefu ára og býr í SOS Barnaþorpi í Argentínu. Þrátt fyrir að hann fái ekki notið þeirrar gæfu að alast upp með raunverulegum foreldrum sínum er gæfa hans í lífinu m.a. sú að leikskólabörn í Kópavogi skuli greiða framfærslu hans.

 
Gjafaseðill

Peningagjafir til barnanna - 12.12.2010

Undanfarið hafa fjölmargir styrktarforeldrar haft samband við skrifstofu SOS Barnaþorpanna og spurt hvernig þeir geti sent börnunum peningagjafir.

 
Bækur til sölu

Bækur til styrktar SOS - 11.12.2010

SOS Barnaþorpin eru með í sölu þrjár stórskemmtilegar barnabækur eftir Hugin Þór Grétarsson. Stór hluti söluandvirðis rennur til barnaþorpanna.

 
Börnin fá næringarríkt fæði

Skjól fyrir fórnalömb flóða - 10.12.2010

Undanfarna daga hafa gríðarmiklar rigningar í norðurhluta Kólumbíu leitt til flóða og aurskriða og talið er að um 200 manns hafi farist. Um 1 ½ milljón manna hafa misst heimili sín og reyna yfirvöld og fjöldi hjálparsamtaka að veita þessu fólki aðstoð.

 
Aðfangadagskvöld - hv

Jólakortin seljast vel - 4.12.2010

Ný jólakort SOS Barnaþorpanna hafa vægast sagt fengið mjög góðar viðtökur og seljast þau vel. Hægt er að panta kortin á netinu og fá þau send heim á 2-3 dögum.

 
Frá nýja barnaþorpinu í Phuket

Nýtt barnaþorp í Tælandi - 3.12.2010

Fyrir nokkrum mánuðum fluttu fyrstu umkomulausu börnin í nýtt barnaþorp í Phuket í Tælandi. Börnin höfðu orðið umkomulaus í kjölfar flóðbylgjunnar miklu (Tsunami) í Asíu um jólin 2004. 121 barn býr nú í þorpinu.

 
gorazde-kindergarten

Flóð í Bosníu - 3.12.2010

Undanfarna daga hefur mikið rignt í Bosníu Hersegóvínu og vatn þekur stór svæði, m.a. leikskóla SOS Barnaþorpanna í bænum Gorazde. Skemmdir eru talsverðar, en ekkert barn hefur sakað.

 
tpa-picture-44644.JPG

Átök á Haítí - börnin óhult - 16.11.2010

Í gær brutust út átök í næst stærstu borg Haítí, Cap Haitien, þegar borgarbúar réðust á starfsmenn Sameinuðu þjóðanna með grjótkasti en almenningur sakar SÞ um að bera ábyrgð á kólerufaraldri sem nú geisar á Haítí.

 
tpa-picture-44627

Nýtt barnaþorp á Indlandi - 15.11.2010

Nýverið var nýtt SOS Barnaþorp formlega tekið í notkun í Alibaug, skammt frá Mumbai á Indlandi. Bygging þorpsins var að fullu kostuð af fyrirtækinu Esprit.

 
tpa-picture-44541

6.000 manns í neyðarskýlum - 12.11.2010

Ástandið á eynni Jövu (Indónesíu) virðist fara versnandi með hverjum deginum en eldgos hefur nú staðið yfir í eldfjallinu Merapi frá 26. október sl. Um 6.000 manns, aðallega börn og mæður, hafa leitað í neyðarskýli sem SOS Barnaþorpin hafa sett upp víða í nágrenni fjallsins.

 
tpa-picture-43731

Nýtt barnaþorp í Namibíu - 10.11.2010

Nú fyrir skemmstu var nýtt barnaþorp formlega tekið í notkun í Ondangwa í Namibíu. 120 áður umkomulaus börn munu eignast þar móður og heimili.

 
1010-SL-Maizelands-PC-room1

Íslendingar gefa tölvur til Simbabve - 9.11.2010

Hver einasta króna sem styrktarforeldrar greiða með börnum sínum fer úr landi og nýtist þannig börnunum. Með frjálsum framlögum býðst styrktarforeldrum og öðrum hins vegar að styðja almennt við starfsemi SOS Barnaþorpanna. Nýverið keyptum við t.a.m. tölvur handa grunnskólanemum í Simbabve fyrir frjáls framlög frá Íslandi.

 
blog-4-storm_(1)

Tómas nálgast Haítí - 4.11.2010

SOS Barnaþorpin á Haítí undirbúa nú börnin og starfsfólk fyrir komu hitabeltisstormsins / fellibylsins Tómasar, en hann mun skella á eyjunni á morgun eða laugardag.

 
thailand-hatyai2_(2)

Flóð í Asíu - 2.11.2010

Náttúruöflin halda áfram að leika Asíubúa grátt. Hér eru nýjustu fréttir frá okkar fólki í Víetnam og Tælandi.

 
indonesia-shelter

Eldgos á Indónesíu - 29.10.2010

SOS Barnaþorpin á Indónesíu hafa komið upp bráðabirgðaaðstöðu fyrir rúmlega 600 börn og fjölskyldur þeirra sem flúið hafa heimili sín vegna eldgossins í Merapi á eynni Jövu.

 
tpa_picture_37476

Fellibylurinn Megi - 22.10.2010

Fellibylurinn Megi skildi eftir sig slóð eyðileggingar í Nghe An og Quang Binh héruðum í Víetnam en bæði SOS Barnaþorpin á þessum slóðum (Vinh og Dong Hoi) sluppu við skemmdir. Öll börn og starfsfólk í barnaþorpunum eru örugg.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica