Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nú þegar rúm tvö ár eru liðin frá mannskæðum jarðskjálfta á Haítí hafa yfirvöld þar ásamt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (Unicef) beðið SOS Barnaþorpin um að taka að sér 200 börn frá illa búnum munaðarleysingjaheimilum.
Flest bendir nú til þess að hungursneyð sé yfirvofandi í nokkrum löndum í V-Afríku. Malí, Búrkína Fasó og Senegal eru í mestri hættu. Þurrkar hafa leitt til uppskerubrests og verulega hefur gengið á matarbirgðir. SOS eru í viðbragðsstöðu vegna þessa.
Þann 12. janúar 2010 reið öflugur jarðskjálfti yfir Haítí. Yfir 230.000 manns fórust og þrjár milljónir manna slösuðust, misstu heimili sín eða urðu fyrir öðrum áföllum vegna skjálftans. Um 500 umkomulausum börnum var komið í hendur SOS Barnaþorpanna.
Öll börn, mæður og starfsfólk SOS Barnaþorpsins í Puducherry á Indlandi er óhult eftir að hvirfilbylur gekk yfir þorpið á gamlárskvöld.
SOS Barnaþorpin óska styrktaraðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.
Bílabúð Benna hefur afhent SOS Barnaþorpunum framlag að upphæð kr. 700.000 sem rennur óskipt til barnahjálpar samtakanna í Gambíu í V-Afríku.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja 10 milljónir króna til neyðaraðstoðar SOS Barnaþorpanna við sómalska flóttamenn í Eþíópíu. Neyðinni í A-Afríku er hvergi nærri lokið.
Þann 14. nóvember sl. var stór dagur fyrir umkomulaus börn í bænum Juliaca í Perú en þá var opnað þar nýtt SOS Barnaþorp fyrir 120 börn.
Nú á dögunum var nýtt barnaþorp tekið í notkun í Afríkuríkinu Níger. 120 börn sem sum þurftu áður að betla á götum úti eiga nú gott heimili, SOS-móður, systkini og fá að ganga í góðan skóla.
Frá því að SOS Barnaþorpin hófu neyðaraðstoð í Austur-Afríku í júlí sl. hafa samtökin bjargað mannslífum og bætt lífsskilyrði yfir 70.000 fórnarlamba hungursneyðarinnar.
Með því að greiða valkröfu frá SOS Barnaþorpunum í heimabankanum þínum tekur þú þátt í að gefa munaðarlausum og yfirgefnum börnum nýja móður, gott heimili og góða æsku.
Nýtt SOS Barnaþorp var formlega tekið í notkun í Kólumbíu þann 18. nóvember sl. að viðstöddum fulltrúum alþjóðasamtaka SOS, yfirvalda, svissneskra styrktaraðila og nágranna þorpsins.
Í lok október fluttu fyrstu átta börnin í nýtt SOS Barnaþorp í Vologda í Rússlandi. Börnunum mun svo fjölga smám saman en þorpið á að geta tekið við allt að sextíu umkomulausum börnum.
Í Jórdaníu eru hjúskaparbrot flokkuð sem glæpur sem fangelsisvist liggur við. Þannig eru börn ekki aðeins aðskilin frá foreldrum sínum heldur missa þau líka ættarnafn sitt. Nýverið stóðu SOS Barnaþorpin í Jórdaníu fyrir málþingi um réttindi barna sem fæðast utan hjónabands.
Ung kanadísk kona hefur undanfarna 16 mánuði hjólað yfir þvert og endilangt Kanada (og farið ýmsar krókaleiðir) fyrir SOS Barnaþorpin.
Þessa dagana erum við að hringja í einstaklinga sem styrkt hafa SOS Barnaþorpin á undanförnum árum og bjóða þeim að endurnýja stuðning sinn við munaðarlaus og yfirgefin börn.
Jólakort SOS Barnaþorpana 2011 eru komin í hús. Þau eru eftir listakonuna Ingibjörgu Eldon Logadóttur og eru skreytt með gull- og silfurfólíu.
SOS Barnaþorpunum hefur borist 9.000 kr. framlag frá fjórum börnum sem seldu vörur til styrktar SOS á menningarnótt í ágúst síðastliðinn.
Eina sjúkrahúsinu í Sómalíu sem ekki krefur sjúklinga sína um greiðslu er nú haldið lokuðu af stríðandi fylkingum. Þetta er Sjúkrahús SOS í Mogadishu.
Þann 8. október sl. opnaði nýtt SOS Barnaþorp í Frakklandi. Þorpið er í bænum Persan í Norður-Frakklandi og hafa 49 umkomulaus börn fengið þar heimili.
SOS Barnaþorpin eru nú að hefja starfsemi í nýju landi: Djíbútí í Austur-Afríku. Framkvæmdir við fyrsta barnaþorpið í landinu hefjast strax í næsta mánuði. Samhliða þorpinu verður byggður SOS leikskóli.
Upp úr miðnætti aðfaranótt sl. sunnudags brutust vopnaðir menn inn í SOS Barnaþorpið í Lusaka í Sambíu. Börnin sakaði ekki en öryggisvörður lét lífið.
Hús eitt í barnaþorpi í Gambíu er ólíkt öllum hinum húsunum þar. Þeir sem stíga fæti inn í húsið gefa sig nær undantekningalaust á vald tilfinninganna og vilja helst ekki fara aftur út. Húsið er bráðabirgðaheimili fyrir umkomulaus ungabörn.
SOS Barnaþorpin í Sómalíu hafa ákveðið að auka neyðaraðstoð sína til að draga úr hugsanlegum áhrifum mislingafaraldurs, bráðaniðurgangs og annarra sjúkdóma. SOS og önnur hjálparstamtök í Sómalíu eru nú í miklu kappi við tímann.
Þau eru komin aftur heim í barnaþorpið; börnin sem þurftu að flýja heimili sín í Abobo-Gare á Fílabeinsströndinni vegna vopnaðra átaka í febrúar sl.
„Allir í Mogadishu vita um SOS Barnaþorpin“ er fullyrðing sem oft heyrist í stríðshrjáðri höfuðborg Sómalíu; borg sem mörg alþjóðleg hjálparsamtök hafa þurft að yfirgefa. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Mogadishu síðan snemma á níunda áratugnum.
Frjáls félagasamtök á Íslandi sem starfa að alþjóðlegri þróunarsamvinnu standa að kynningu á þróunarmálum í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands dagana 5.-7. september.
SOS Barnaþorpin hafa opnað nýja heilsugæslustöð á þurrkasvæðunum í Sómalíu. Stöðin er staðsett í Abbas flóttamannabúðunum.
Nú þegar rúmt eitt og hálft ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla á Haítí (12.jan.2010) lítum við um öxl og skoðum hvernig neyðaraðstoð SOS nýttist nauðstöddum – og mun nýtast íbúum landsins um ókomin ár.
Neyðaraðstoð SOS Barnaþorpanna í Sómalíu, Eþíópíu og Keníu er nú unnin af miklum þunga en neyðin á enn eftir að aukast á svæðinu. Nokkur hundruð þúsund börn heyja nú harða baráttu við sjálfan dauðann.
SOS Barnaþorpin sinna nú umfangsmiklu hjálparstarfi vegna hungursneyðar í Austur Afríku. Umfangið er mest í Sómalíu en samtökin eru einnig að störfum í Eþíópíu og Keníu.
Í gær þurftu börnin í SOS Barnaþorpinu í Mogadishu í Sómalíu að yfirgefa þorpið vegna harðra bardaga stjórnarhersins og sveita al Shabaab í nágrenni þorpsins. Einnig þurfti að rýma sjúkrahús SOS í borginni af sömu ástæðu.
Hann var af stærri gerðinni, pakkinn sem börnin og SOS mæðurnar í Lapplandi fengu á dögunum. Chevrolet afhenti þá bíl nr. 50 af þeim hundrað sem bílaframleiðandinn gefur SOS Barnaþorpunum á 100 ára afmælisári Chevrolet.
Í síðustu viku fóru fram útfarir fórnarlamba fjöldamorðanna í Osló og Útey. Gríðarlegur fjöldi fólks fylgdi hinum látnu til grafar. Fjölskyldur nokkurra fórnarlamba afþökkuðu blóma og kransa og vísuðu þess í stað á SOS Barnaþorpin.
Nú á dögunum útskrifaði Verknámsskóli SOS Barnaþorpanna í Cap Haitien á Haítí 350 pípulagningarmenn, snyrtifræðinga, húsgagnasmiði, bifvélavirkja o.fl. Þau eiga öll að geta fengið vinnu.
Pólitískur óstöðugleiki, veikir innviðir og gríðarlegt umfang vandans koma í veg fyrir að þurfandi fái hjálp á þurrkasvæðunum í A-Afríku. Reynsla SOS Barnaþorpanna og áunnið traust gerir samtökunum nú kleift að ná til hinna þurfandi.
Milljónir íbúa í löndunum á horni Afríku (Eþíópíu, Sómalíu, Djíbútí og Keníu) berjast nú fyrir lífi sínu vegna mestu þurrka á svæðinu í marga áratugi. SOS Barnaþorpin hafa mikla reynslu frá þessu svæði og sinna nú hjálparstarfi í sívaxandi mæli.
Grunnskóla SOS Barnaþorpanna í Basse áskotnaðist sá heiður á dögunum að vera valinn skóli ársins í Gambíu. Það var menntamálaráðuneyti Gambíu sem veitti skólanum þennan eftirsóknarverða titil.
Sú var tíð að jarðefnaeldsneyti var eini almenni orkugjafinn í Afríku og þó víðar væri leitað. Nýverið tóku SOS Barnaþorpin í Keníu í notkun öflugt sólarorkukerfi, það fyrsta sinnar tegundar í landinu.
Í SOS Barnaþorpunum í Mexíkó búa fötluð og ófötluð börn saman og lögð er áhersla á að hvert barn fái þörfum sínum mætt, hvort sem það er fatlað eða ekki.
Laugardagurinn 9. júlí 2011 verður lengi í minnum hafður meðal íbúa Suður-Súdan en það er opinber stofndagur þess nýja ríkis. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Suður-Súdan í meira en áratug.
Nú á dögunum var fyrsta SOS Barnaþorpið í Sómalílandi formlega tekið í notkun í Hargeisa. 120 börn sem ekki geta búið hjá fjölskyldum sínum fá heimili í þorpinu auk þess sem SOS reka heilsugæslu og Fjölskyldueflingu á staðnum.
Þrátt fyrir djúpa efnahagslægð, aukið atvinnuleysi, lánaerfiðleika og það almenna ástand sem ríkt hefur á Íslandi undanfarin þrjú ár, og við köllum í daglegu tali kreppu, hafa stuðningsaðilar SOS Barnaþorpanna hér á landi sýnt það og sannað að umkomulaus börn hins stóra heims eru ekki gleymd.
Sl. fimmtudag opnaði Helmut Kutin alþjóðaforseti SOS nýtt barnaþorp í Úganda. Eitt fjölskylduhús í þorpinu var fjármagnað af Íslendingum.
Utanríkisráðuneyti Íslands hefur ákveðið að koma að fjármögnun grunnskóla SOS Barnaþorpanna í Úganda með 12 milljóna króna framlagi.
Þriðja SOS Barnaþorpið í Grikklandi hefur verið tekið í notkun í úthverfi Alexandroupolis. 40 áður umkomulaus börn hafa fengið heimili og SOS-móður barnaþorpinu.
Þúsundir manna hafa flúið óeirðir og ofbeldi á Fílabeinsströndinni yfir til nágrannaríkisins Líberíu. Hjálparsamtök gera það sem í þeirra valdi stendur til að lina þjáningar fólksins sem komið hefur sér fyrir í flóttamannabúðum og á þéttbýlisstöðum. SOS Barnaþorpin taka þátt í hjálparstarfinu.
Nú þegar aðeins einn og hálfur mánuður er þar til Suður Súdan verður sjálfstætt ríki hafa óeirðir blossað upp í Abyei héraði, við væntanleg en óljós landamæri Norður- og Suður Súdans. Talið er að á bilinu 60.000 – 80.000 manns, aðallega konur og börn, hafi flúið héraðið. SOS Barnaþorpin eru fjarri svæðinu en samtökin fylgjast þó náið með þróun mála.
SOS Barnaþorpin á Íslandi og Bílabúð Benna hafa gert með sér samstarfssamning í tilefni af 100 ára afmæli Chevrolet bílaframleiðandans.
SOS Barnaþorpin í Ísrael reka tvö frístundaheimili fyrir börn Araba úr flokki Bedúína. Samfélag Bedúína er yfir sig hrifið af heimilunum og þrýstir á samtökin um opnun þriðja heimilisins.
Nú á dögunum útskrifuðu SOS Barnaþorpin í Gambíu 19 nemendur sem lokið höfðu námi í félagsráðgjöf .
Nú á dögunum opnaði danska prinsessan Benedikte nýtt SOS Barnaþorp í Kayonza í Rúanda. Barnaþorpið verður framtíðarheimili 120 umkomulausra barna.
SOS Barnaþorpin og Garðheimar tóku höndum saman á mæðradeginum, þann 8. maí, og söfnuðu fé til menntunar SOS-mæðra. Af hverjum seldum mæðradagsvendi runnu 100 krónur til málefnisins.
Sunnudagurinn 15. maí er alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar. Þá er ekki aðeins gott að þakka fyrir sína eigin fjölskyldu, heldur einnig að minnast og rétta hjálparhönd öllum þeim milljónum barna sem ekki eiga ástríka foreldra eða aðra forráðamenn.
Á dögunum veitti Ernest Bai Koroma, forseti Síerra Leóne, alþjóðaforseta SOS Barnaþorpanna, Helmut Kutin viðurkenningu fyrir störf samtakanna í þágu munaðarlausra og yfirgefinna barna í landinu undanfarin 36 ár.
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Garðheima og SOS Barnaþorpanna. Samningurinn felur það í sér að fyrir hvern seldan mæðradagsblómvönd renna 100 krónur til starfsþjálfunar SOS-mæðra í Afríku.
25 ár eru liðin frá því að stofnandi SOS Barnaþorpanna, Hermann Gmeiner, lést 66 ára að aldri. Hermann var einstakur maður sem ákvað að helga líf sitt baráttunni fyrir velferð munaðarlausra og yfirgefinna barna.
SOS Barnaþorpin leita að kröftugum einstaklingi í tímabundið starf til að stýra nokkurra mánaða átaksverkefni meðal fyrirtækja hér á landi.
Nú þegar rúmir átta mánuðir eru liðnir frá mannskæðum flóðum í Pakistan hafa SOS Barnaþorpin hætt matvæladreifingu á flóðasvæðunum og snúið sér að því að byggja hús fyrir heimilislausar fjölskyldur.
Framkvæmdir við nýtt barnaþorp, leikskóla, grunnskóla og heilsugæslustöð í Kinshasa í Kongó eru vel á veg komnar. Nýráðnar SOS-mæður sitja nú námskeið í umönnun barna og rekstri heimilis.
Fyrir tæpum mánuði sögðum við frá því að vopnaðir uppreisnarmenn hafi tekið barnaþorpið í Malakal í Súdan í gíslingu og flytja hafi þurft öll börnin í öruggt skjól. Þau gleðitíðindi voru að berast að börnin hafa nú snúið aftur til síns heima; í barnaþorpið.
Yfirvöld í Japan hafa óskað eftir því við SOS Barnaþorpin að samtökin taki að sér börn sem misstu foreldra sína í jarðskjálftanum og flóðbylgjunni á dögunum.
Sem kunnugt er reið gríðarstór jarðskjálfti yfir Japan í morgun. Hvorki skjálftinn né flóðbylgjur þær sem fylgdu í kjölfarið virðast hafa valdið neinum skaða í SOS Barnaþorpunum í Asíu.
Þau gleðitíðindi áttu sér stað rétt fyrir síðustu jól að nýtt SOS Barnaþorp í Rússlandi tók á móti fyrstu umkomulausu börnunum sem þar munu alast upp undir verndarvængjum SOS mæðra.
Ófremdarástand ríkir nú á Fílabeinsströndinni og fer versnandi. Barist hefur verið með skotvopnum nærri SOS Barnaþorpinu í Abobo-Gare, sem er í úthverfi borgarinnar Abidjan og ákveðið hefur verið að rýma barnaþorpið.
Miklar verðhækkanir á nauðsynjum, s.s. matvælum, hafa komið illa við almenning í Norður Afríku og Miðausturlöndum. Þó svo að hækkanirnar hafi mest áhrif á fátækar barnafjölskyldur knýja þær einnig dyra hjá SOS Barnaþorpunum.
Nýverið opnaði forsætisráðherra Kambódíu formlega nýjan grunnskóla SOS Barnaþorpanna í höfuðborginni Phnom Penh. Yfir 200 nemendur munu stunda nám við skólann.
Um 150 fjölskyldur hafa leitað skjóls í SOS Barnaþorpinu í Malakal eftir mannskæð átök á svæðinu sem brutust út vegna birtingar á úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði S-Súdan.
Eftir miklar rigningar á Sri Lanka liggur nú vatn að hluta til yfir SOS Barnaþorpinu í Anuradhapura. Sorp flýtur um og lítið lát er á úrkomunni.
Brotist hefur verið inn í tvö SOS Barnaþorp í Egyptalandi; í Kaíró og Alexandríu. Börnin og SOS mæðurnar eru óhult en forstöðumaður annars þorpsins slasaðist lítillega.
Eins og kunnugt er hafa mikil mótmæli staðið yfir í Egyptalandi undanfarna daga. Þrjú SOS Barnaþorp eru í landinu og ekkert amar að börnunum.
Neyðin kennir naktri konu að spinna og SOS mæðrum að framleiða lífrænt gas til eldunar þegar aðrir orkugjafar reynast of dýrir.
Gríðarlegar rigningar í Brasilíu hafa víða valdið flóðum og aurskriðum með tilheyrandi eignatjóni og mannfalli. Yfirvöld hafa nú beðið SOS Barnaþorpin um að taka tímabundið að sér börn sem virðast hafa misst sína nánustu.
Nathalie Nozile, nýútskrifaður lögfræðingur sem ólst upp í SOS Barnaþorpinu í Santo á Haítí, hefur verið valin fyrsti fulltrúi Jolie-Pitt sjóðsins á Haítí.
Miðvikudaginn 12. janúar er eitt ár liðið frá jarðskjálftanum á Haítí. Áætlað er að um 230.000 manns hafi látið lífið í skjálftanum, sem var 7.3 á Richter.
Utanríkisráðuneytið mun fjármagna byggingu heimilis fyrir umkomulaus börn í nýju SOS Barnaþorpi í Úganda.
SOS Barnaþorpin óska styrktaraðilum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Við þökkum stuðninginn og samstarfið á árinu sem er að líða.
Lesótó er lítið land, umvafið nágranna sínum S-Afríku á allar hliðar. Nú á dögunum var nýtt SOS Barnaþorp formlega tekið í notkun í landinu, en fyrir var eitt barnaþorp í Lesótó.
Lúkas er ellefu ára og býr í SOS Barnaþorpi í Argentínu. Þrátt fyrir að hann fái ekki notið þeirrar gæfu að alast upp með raunverulegum foreldrum sínum er gæfa hans í lífinu m.a. sú að leikskólabörn í Kópavogi skuli greiða framfærslu hans.
Undanfarið hafa fjölmargir styrktarforeldrar haft samband við skrifstofu SOS Barnaþorpanna og spurt hvernig þeir geti sent börnunum peningagjafir.
SOS Barnaþorpin eru með í sölu þrjár stórskemmtilegar barnabækur eftir Hugin Þór Grétarsson. Stór hluti söluandvirðis rennur til barnaþorpanna.
Undanfarna daga hafa gríðarmiklar rigningar í norðurhluta Kólumbíu leitt til flóða og aurskriða og talið er að um 200 manns hafi farist. Um 1 ½ milljón manna hafa misst heimili sín og reyna yfirvöld og fjöldi hjálparsamtaka að veita þessu fólki aðstoð.
Ný jólakort SOS Barnaþorpanna hafa vægast sagt fengið mjög góðar viðtökur og seljast þau vel. Hægt er að panta kortin á netinu og fá þau send heim á 2-3 dögum.
Fyrir nokkrum mánuðum fluttu fyrstu umkomulausu börnin í nýtt barnaþorp í Phuket í Tælandi. Börnin höfðu orðið umkomulaus í kjölfar flóðbylgjunnar miklu (Tsunami) í Asíu um jólin 2004. 121 barn býr nú í þorpinu.
Undanfarna daga hefur mikið rignt í Bosníu Hersegóvínu og vatn þekur stór svæði, m.a. leikskóla SOS Barnaþorpanna í bænum Gorazde. Skemmdir eru talsverðar, en ekkert barn hefur sakað.
Í gær brutust út átök í næst stærstu borg Haítí, Cap Haitien, þegar borgarbúar réðust á starfsmenn Sameinuðu þjóðanna með grjótkasti en almenningur sakar SÞ um að bera ábyrgð á kólerufaraldri sem nú geisar á Haítí.
Nýverið var nýtt SOS Barnaþorp formlega tekið í notkun í Alibaug, skammt frá Mumbai á Indlandi. Bygging þorpsins var að fullu kostuð af fyrirtækinu Esprit.
Ástandið á eynni Jövu (Indónesíu) virðist fara versnandi með hverjum deginum en eldgos hefur nú staðið yfir í eldfjallinu Merapi frá 26. október sl. Um 6.000 manns, aðallega börn og mæður, hafa leitað í neyðarskýli sem SOS Barnaþorpin hafa sett upp víða í nágrenni fjallsins.
Nú fyrir skemmstu var nýtt barnaþorp formlega tekið í notkun í Ondangwa í Namibíu. 120 áður umkomulaus börn munu eignast þar móður og heimili.
Hver einasta króna sem styrktarforeldrar greiða með börnum sínum fer úr landi og nýtist þannig börnunum. Með frjálsum framlögum býðst styrktarforeldrum og öðrum hins vegar að styðja almennt við starfsemi SOS Barnaþorpanna. Nýverið keyptum við t.a.m. tölvur handa grunnskólanemum í Simbabve fyrir frjáls framlög frá Íslandi.
SOS Barnaþorpin á Haítí undirbúa nú börnin og starfsfólk fyrir komu hitabeltisstormsins / fellibylsins Tómasar, en hann mun skella á eyjunni á morgun eða laugardag.
Náttúruöflin halda áfram að leika Asíubúa grátt. Hér eru nýjustu fréttir frá okkar fólki í Víetnam og Tælandi.
SOS Barnaþorpin á Indónesíu hafa komið upp bráðabirgðaaðstöðu fyrir rúmlega 600 börn og fjölskyldur þeirra sem flúið hafa heimili sín vegna eldgossins í Merapi á eynni Jövu.
Fellibylurinn Megi skildi eftir sig slóð eyðileggingar í Nghe An og Quang Binh héruðum í Víetnam en bæði SOS Barnaþorpin á þessum slóðum (Vinh og Dong Hoi) sluppu við skemmdir. Öll börn og starfsfólk í barnaþorpunum eru örugg.